../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Resd-111
Útg.dags.: 03/31/2021
Útgáfa: 4.0
2.02.02.02.05 B-TSH
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar:
B-TSH
Annað heiti rannsóknar:
TSH í blóðþerripappír.
Markmið rannsóknar:
Greining og/eða að fylgjast með vanstarfsemi skjaldkirtils.
Aðferð:
Mæling með hjálp mótefna (Immunoassay, Delfia, Perkin Elmer, Finnlandi).
Eining ESD:
Lífefnaerfðarannsóknir - nýburaskimun.
Ábendingar:
Greining og/eða fylgjast með vanstarfsemi skjaldkirtils hjá sjúklingum, sem af ýmsum orsökum er erfitt að stinga.
Pöntun:
Notuð er sama beiðni og fyrir nýburaskimun, gætið þess að beiðnin hafi sama raðnúmer og filterpappírinn, sem notaður er við sýnatökuna.
Sheilah Severino Snorrason deildarlífeindafræðingur (
sheilah@landspitali.is
) og Saga Rúnarsdóttir (sagar@landspitali.is) senda beiðnirnar samkvæmt ósk.
Einnig má panta beiðnir í síma: 543 5056 og 543 5039, GSM 824 5238.
Sýnishorn af nýburaskimunarbeiðni.
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Undirbúningur sjúklings og sýni
Undirbúningur sjúklings og sýni
Upplýst samþykki:
Á ekki við.
Tegund sýnis:
Sýni má taka t.d. með stungu í fingur eða eyra. Notaður er sérstakur þerripappír sem blóð er látið drjúpa í svo það fylli út í hringina. Pappírinn er látinn þorna í u.þ.b. 3-4 klst. á þurrum dimmum stað við herbergishita og látinn í umslag og sendur á rannsóknastofuna. Sjá nánari leiðbeiningar fyrir sýnatökur í þerripappír á
nýburaskimunarbeiðninni.
Magn sýnis:
Fyrir mælingu á TS
H
eingöngu
er n
ægjanlegt að fá tvo gegnumvætta hringi. Í einum hring eru u.þ.b. 70 µL af blóði.
Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna
Flutningskröfur:
Sýni má senda með A-pósti til rannsóknastofunnar.
Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sýnið geymist vel á þurrum dimmum stað fram að sendingu.
Svartími
Svartími
1 vika
Niðurstaða og túlkun
Niðurstaða og túlkun
Niðurstaða og túlkun eru skráðar í Shire og birtar í Heilsugátt.
Sérsvar er sent til beiðandi læknis ef viðkomandi hefur ekki aðgang að Heilsugátt.
Heimildir
Heimildir
Aðferðalýsing
Verkefnisstjóri nýburaskimunar/lífefnaerfðafræði:
Leifur Franzson lyfjafræðingur (
leifurfr@landspitali.is
)
Sími: 543 5617/824 5734
Ritstjórn
Hildur Júlíusdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Jón Jóhannes Jónsson
Útgefandi
Hildur Júlíusdóttir
Upp »