../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Resd-111
Útg.dags.: 12/18/2023
Útgáfa: 5.0
2.02.02.05 B-TSH
    Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
    Heiti rannsóknar: B-TSH
    Annað heiti rannsóknar: TSH í blóðþerripappír.
    Markmið rannsóknar: Greining og/eða að fylgjast með vanstarfsemi skjaldkirtils.
    Aðferð: Mæling með hjálp mótefna (Immunoassay, Delfia, Perkin Elmer, Finnlandi).
    Eining ESD: Lífefnaerfðarannsóknir - nýburaskimun.
    Ábendingar: Greining og/eða fylgjast með vanstarfsemi skjaldkirtils hjá sjúklingum, sem af ýmsum orsökum er erfitt að stinga.
    Pöntun: Notuð er sama beiðni og fyrir nýburaskimun, gætið þess að beiðnin hafi sama raðnúmer og filterpappírinn, sem notaður er við sýnatökuna.
    Sheilah Severino Snorrason deildarlífeindafræðingur (sheilah@landspitali.is) og Saga Rúnarsdóttir (sagar@landspitali.is) senda beiðnirnar samkvæmt ósk.
    Einnig má panta beiðnir í síma: 543 5056 og 543 5039, GSM 824 5238. Sýnishorn af nýburaskimunarbeiðni.
    Verð: Grunngjald 10 einingar, viðbætur sjá Gjaldskrá
    Hide details for Undirbúningur sjúklings og sýniUndirbúningur sjúklings og sýni
    Upplýst samþykki: Á ekki við.
    Tegund sýnis: Sýni má taka t.d. með stungu í fingur eða eyra. Notaður er sérstakur þerripappír sem blóð er látið drjúpa í svo það fylli út í hringina. Pappírinn er látinn þorna í u.þ.b. 3-4 klst. á þurrum dimmum stað við herbergishita og látinn í umslag og sendur á rannsóknastofuna. Sjá nánari leiðbeiningar fyrir sýnatökur í þerripappír á nýburaskimunarbeiðninni.
    Magn sýnis: Fyrir mælingu á TSH eingöngu er nægjanlegt að fá tvo gegnumvætta hringi. Í einum hring eru u.þ.b. 70 µL af blóði.
    Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna
    Flutningskröfur: Sýni má senda með A-pósti til rannsóknastofunnar.
    Geymsla ef bið verður á sendingu: Sýnið geymist vel á þurrum dimmum stað fram að sendingu.
    Hide details for Niðurstaða og túlkunNiðurstaða og túlkun
    Niðurstaða og túlkun eru skráðar í Shire og birtar í Heilsugátt.
    Skriflegt svar er sent til beiðandi læknis sé þess sérstaklega óskað.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    Aðferðalýsing
    Verkefnisstjóri nýburaskimunar/lífefnaerfðafræði:
    Leifur Franzson lyfjafræðingur (leifurfr@landspitali.is)
    Sími: 543 5617/824 5734


Ritstjórn

Eiríkur Briem - eirikubr
Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur
Sheilah Severino Snorrason

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Jón Jóhannes Jónsson

Útgefandi

Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 05/24/2017 hefur verið lesið 1038 sinnum