../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-098
Útg.dags.: 11/18/2013
Útgáfa: 1.0
2.02.05.04.101 Só augntóft
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar:
Segulómun augntóft/augntótt
Samheiti:
MRI orbita
Pöntun:
Röntgensvör
, sjá
leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu
.
Ábendingar:
Óútskýrð sjónskerðing, bólgur, æxli o.fl.
Frábendingar
:
Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, VP - shunt, raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.
Spurningar sem spurt er linkur
Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsóknum á þunguðum konum eru aðeins framkvæmdar þegar brýn nauðsyn þykir.
Athugið:
Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli.
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur og framkvæmd
Undirbúningur:
Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn.
Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi töflu (Dormicum 7,5 mg) og þurfa þeir að mæta 30 mínútur fyrir rannsókn. Ekki er æskilegt að keyra eftir róandi lyf.
Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
Velkomið er að hafa aðstandenda með sér.
Mikilvægt er að mæta í rannsókn á réttum tíma því við getum ekki lofað að rannsókn verði gerð ef mætt er eftir að rannsóknartími hefst en gefum þá nýjan tíma.
Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista með
spurningum
áður en rannsókn hefst
.
Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti, og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa. Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
Aðferð:
Ef gefa þarf skuggaefni,
omniscan
í rannsókn þarf að setja upp æðalegg í handlegg.
Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, hjálmur er settur yfir höfuð og bekkurinn er færður inn í tækið.
Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
Heyrnartól eru sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
Allir fá öryggishnapp til að gera vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
Tímalengd:
20 - 40 mínútur
Eftirmeðferð:
Engin
Niðurstöður
Niðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur.
Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir á innri vef.
Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
Heimildir
Heimildir
1.
Selctionarl Anatomy
2.
MR safety
Ritstjórn
Alda Steingrímsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir
Halldóra Sigrún Guðmannsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Pétur Hannesson
Útgefandi
Upp »