../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-074
Útg.dags.: 06/20/2017
Útgáfa: 2.0
2.02.06.101 TS lungnaslagæðar
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af lungnaslagæðum.
Samheiti: CT Pulm angio.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Segar í lungnaslagæðum.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi, þungun.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna inn á innraneti LSH, sjá Heilsugátt. Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur eitthvert af eftirtöldum sykursýkislyfjum: Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin,
    skal hætta inntöku metformin-lyfs rannsóknardag og byrja ekki aftur fyrr en 2 daga eftir rannsóknina.
    Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn er æskilegt að endurtaka serum kreatínin mælingu eftir rannsókn.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á röntgendeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Enginn, en mælt er með að fjarlægja hálsmen áður en komið er í rannsókn.
  • Ef vitað er um ofnæmi fyrir skuggaefni sem gefið er í æð á röntgen þarf undirbúning, sjá frábendingar.
  • Stundum þarf að hætta töku sykursýkislyfja sem innihalda Metformin, sjá: frábendingar.

Aðferð: Við rannsókn af lungnaslagæðum þarf að liggja á bakinu á rannsóknarbekk og setja hendur upp fyrir höfuð.
Gefið er skuggaefni, visipaque í æð og því þarf að setja æðalegg í handlegg.
Mikilvægt er að liggja kyrr á meðan rannsókn er framkvæmd til að forðast myndgalla.
Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd. Það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand líffæra og æða.

Tímalengd: 20 mín.

Eftirmeðferð: Engin, en gott er að vera í góðu vökvajafnvægi og drekka vel af vatni eftir skuggaefnisgjöf.

Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 03/19/2015 hefur verið lesið 572 sinnum