../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-099
Útg.dags.: 01/09/2024
Útgáfa: 3.0
2.02.04 Segulómun af brjóstum
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun brjóst.
Samheiti: Breast MRI, bMRI.
Pöntun: Heilsugátt sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Æxli, meinvörp, sýking, brca, leki úr silikonpúða.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, vefjaþenjari. raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. VP - shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum. Þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.

    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Fasta þarf í 2 klukkustundir fyrir rannsókn vegna þess að liggja þarf á maganum.
      • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir rannsóknartíma til undirbúnings. Ef mætt er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
      • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti, og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.
    Aðferð:
      Yfirleitt er gefið skuggaefni í æð, Gadovist, í þessari rannsókn og þarf því að setja æðalegg í handlegg. Hægt er að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
      Liggja þarf á grúfu á rannsóknarbekk og því er ekki gott að vera nýbúin að borða.
      Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
      Heyrnartól eru sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
      Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
    Tímalengd: 35 -45 mínútur.

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoða og meta rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma. Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Mr safty
    2. Selection Anatomy 2

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Ida Agata Egiert - agatai
    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Maríanna Garðarsdóttir

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 05/31/2014 hefur verið lesið 1427 sinnum