../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-059
Útg.dags.: 07/04/2017
Útgáfa: 2.0
2.02.06.101 TS nýrnahettur Sleppa?
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af nýrnahettum.
Samheiti: CT Adrenal gland.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Fyrirferð í nýrnahettum o.fl.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi. Þungun.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna í Heilsugátt.
    Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur sykursýkislyf sem inniheldur Metformin, sem eru lyf eins og Glucophage, Glucovance eða Avandmet, og nýrnastarfsemi er eðlileg skal hætta inntöku metformin-lyfs rannsóknardag og byrja ekki aftur að taka lyf fyrr en 48 klst. eftir rannsóknina.
    Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn er æskilegt að endurtaka serum kreatínin mælingu eftir rannsókn.
    Sjúklingur með skerta nýrnastarfsemi sem tekur metformin-lyf skal hætta töku lyfs 48 klst. fyrir rannsókn og 48 klst. eftir skuggaefnisgjöf.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.
Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Enginn.
  • Stundum þarf að hætta töku sykursýkislyfja, sjá frábendingar.
  • Ef vitað er um ofnæmi fyrir skuggaefni sem gefið er í æð á röntgen þarf undirbúning, sjá frábendingar.

Aðferð: Liggja þarf á bakinu á rannsóknarbekk með hendur upp fyrir höfuð. Gefið er skuggaefni, visipaque í æð og því þarf að setja upp æðalegg í handlegg.
Mikilvægt er að liggja kyrr á meðan rannsókn er framkvæmd til að forðast myndgalla.
Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd og það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand líffæra og æða.

Tímalengd: 20 mín.

Eftirmeðferð: Engin, en gott er að vera í góðu vökvajafnvægi og drekka vel af vatni eftir skuggaefnisgjöf.
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 05/13/2015 hefur verið lesið 874 sinnum