../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-245
Útg.dags.: 11/07/2023
Útgáfa: 4.0
2.02.01.01 Fólat í rauðum blóðkornum
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Fólat er nauðsynlegt við nýmyndun DNA og þar með frumufjölgun. Skorts gætir því fyrst og fremst í vefjum með hraða umsetningu, svo sem í beinmerg og meltingarfærum. Birgðir eru litlar, duga í 3 - 4 mánuði. Þéttni fólats í rauðum blóðkornum endurspeglar betur fólats birgðir, en magn fólats í sermi.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Undirbúningur sjúklings: Sýni tekið fastandi.

Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í glas (inniheldur EDTA) með fjólubláum tappa án gels (svört miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner
Sýni geymist aðeins 2 klst í stofuhita, í 24 klukkustundir í kæli og einn mánuð við -20°C
Mæling gerð einu sinni í viku.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
Rbk-fólat: 590-1810 nmól/L
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Svar: Sveiflur í serum fólati koma eftir mismunandi fólatríkar máltíðir, rauðblóðkornafólat er stöðugra.
    Túlkun:
    Lækkun: Lækkun á fólati sést við aukna fólatþörf (meðganga, aukin framleiðsla rauðra blóðkorna), minnkað frásog og minnkaða neysla.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill Folate RBC, 2019-03, V 7.0 Roche Diagnostics, 2019
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012

      Ritstjórn

      Aldís B Arnardóttir
      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Sigrún H Pétursdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 04/04/2016 hefur verið lesið 1904 sinnum