../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Resd-031
Útg.dags.: 12/04/2023
Útgáfa: 2.0
2.02.04.16 DNA-einangrun, útsending sýna eða geymsla á DNA
    Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
    Heiti rannsóknar: Sameindaerfðafræði- DNA einangrun, útsending sýna eða geymsla DNA Annað heiti rannsóknar:
    Markmið rannsóknar: Einangra DNA til frekari rannsókna eða geymslu. DNA er magnmælt og gæðamælt fyrir geymslu og sendingu erlendis.
    Aðferð: Einangrun á Qiasymphony eða Purgene einangrun úr EDTA storkuvörðu blóði, merg eða naflastrengsblóði.
    Eining ESD: Sameindaerfðarannsóknir.
    Ábendingar: DNA einangrun fyrir rannsóknir erlendis á DNA og þegar geyma á DNA fyrir mögulegar frekari rannsóknir.
    Pöntun: Annað hvort er pantað í gegnum Heilsugátt eða pappírsbeiðni send með sjá Beiðni - Erfðarannsóknir (DNA rannsóknir).
    Verð: Grunngjald 24,92 eining, viðbætur Sjá Gjaldskrá
    Hide details for Undirbúningur sjúklings og sýniUndirbúningur sjúklings og sýni
    Upplýst samþykki: Einstaklingur skal vera upplýstur um þýðingu erfðafræðirannsókna og mögulegar niðurstöður. Einstaklingur þarf ekki að vera fastandi. Upplýsingar um skriflegt samþykki og eyðublað er að finna hér.
    Tegund sýnaglas: EDTA blóð - fjólublár tappi.
    Magn sýnis: 4-10 ml.
    Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
    Geymsla og flutningur: Sýni er stöðugt án kælingar í 5 daga.

    Hide details for SvartímiSvartími
    1 vika einangrun
    Rannsóknir erlendis taka mis langan tíma. Það skiptir máli hvert sýni er sent og í hvaða rannsókn.
    Hide details for Niðurstaða og túlkunNiðurstaða og túlkun
    Ef geyma á DNA sýni er það skráð í rannsóknarstofukerfi. Sýni sem á að senda á rannsókn erlendis eru send á viðeigandi rannsóknarstofu, það er mismundandi eftir rannsókn og rannsóknarstofu hve langur svartíminn er. Þegar niðurstaða frá erlendu rannsóknarstofunni kemur er gerð íslensk svunta og fest við niðurstöðurnar.
    Niðurstöður frá erlendu rannsóknarstofunni ásamt svuntu eru birtar í Heilsugátt en skriflegar niðurstöður eru aðeins sendar beiðandi lækni sé þess sérstaklega óskað.

Ritstjórn

Eiríkur Briem - eirikubr
Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur
Jón Jóhannes Jónsson
Sif Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Jón Jóhannes Jónsson

Útgefandi

Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 02/23/2023 hefur verið lesið 180 sinnum