../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-053
Útg.dags.: 09/05/2022
Útgáfa: 4.0
2.02.01.01 Albúmín í mænuvökva
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Vatnleysanleg prótein, t. d. albúmín komast ekki auðveldlega yfir blóð-mænuvökva skilju (blood-brain barrier). Það er því mikill styrkleikamunur á albúmíni milli mænuvökva og sermis, með miklu lægri styrk albúmíns í mænuvökva. Albúmín er ekki myndað í miðtaugakerfi og allt albúmín í mænuvökva kemur því úr sermi í gegnum blóð-mænuvökva skilju. Hlutfall milli albúmíns í mænuvökva og sermi er því oft reiknað og notað sem mælikvarði á virkni blóð-mænuvökva skilju.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
0,5 ml mænuvökvi, dauðhreinsað glas - síðasta/síðustu glös
Geymist 1 viku í kæli.
Mæling er gerð alla daga
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
< 4 ára; < 450 mg/L
> 4 ára; 100-400 mg/L
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun
    Hækkun: Hækkun á albúmíni í mænuvökva (hlutfalli albúmíns í mænuvökva og sermi) getur verið vegna skemmdar á blóð-mænuvökva skilju (blood-brain barrier) eða vegna flæðistruflunar á mænuvökva vegna æxlis í mænu eða bólgusjúkdóma í mænu eða taugarótum.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
    Laurell Klinisk Kemi i Praktisk Medicin, Ninth Edition. Studentlitteratur. 2012

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir
      Fjóla Margrét Óskarsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 08/31/2011 hefur verið lesið 1416 sinnum