../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-095
Útg.dags.: 12/09/2021
Útgáfa: 5.0
2.02.03.01.01 Járn
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Í plasma er lítið magn af járni. Járn í blóði er bundið próteininu transferrin og að mestu er það járn sem flutt er frá reticuloendothel kerfi (frá frumum sem brjóta niður hemóglóbín og losa járn) eða görnum (úr fæðu) til mergs, þ.e. frumnanna sem mynda hemoglobin.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd
Gerð og magn sýnis:
Sýnataka að morgni fastandi.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner
Sýni geymist sjö daga í kæli og eitt ár við -20°C
Mæling gerð alla virka daga
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Börn yngri en tveggja mánaða: 20-45 µmol/L; tveggja mánaða til eins árs: 6-18 µmol/L; einstaklingar eldri en eins árs: 9-34 µmol/L.
Viðmiðunarmörk hjá fullorðnum fengin úr samnorrænu verkefni
Niðurstöður
Niðurstöður
Svar:
Dægursveifla í magni járns í blóði. Lægra gildi síðari hluta dags, allt að 30% munur. Við notkun á getnaðarvarnarpillu getur styrkur járns í blóði hækkað
Túlkun
Lækkun
: Lækkun verður við járnskort, langvinnar sýkingar og bólguviðbrögð
Hækkun:
Sést við parenteral járngjöf og ofnotkun á járntöflum, einnig við járnofhleðslu (hemókrómatósis)
Heimildir
Heimildir
Viðmiðunarmörk sjá:
www.furst.no/norip
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »