../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-623
Útg.dags.: 10/10/2023
Útgáfa: 6.0
2.02.15 Íhlutir/lækningatæki - bakteríur, sveppir
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Lækningatæki/íhlutir - almenn ræktun
Samheiti:
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    Grunur um sýkingu í tengslum við inniliggjandi lækningatæki.

    Mögulegar viðbótarrannsóknir: PCR fyrir bakteríum og sveppum.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Ræktun í andrúmslofti og við loftfirrð skilyrði.
    Það verður stöðugt algengara að ýmsum tækjum sé komið fyrir í líkamanum til lækninga, ýmist tímabundið eða til langframa. Dæmi um þetta eru gerviliðir, hjartalokur, gangráðar, slöngur frá heilahvelum til kviðarhols og fleira. Þetta eru alltaf staðir þar sem örverur eru ekki að eðlilegu. Það er möguleiki á að bakteríur og sveppir setjist á þessi tæki og valdi alvarlegum sýkingum.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Gerð og magn sýnisGerð og magn sýnis
      Mjög misjafnt, fer eftir því hver hluturinn er. Sé hann smár er gott að fá hann allan. Stundum er sendur hluti, til dæmis sitt hvor endinn af slöngu frá heilahveli til kviðarhols. Sé hluturinn stór, til dæmis gerviliður, er gott að taka nokkur strok af honum á bakteríuræktunarpinna.
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      Allar líkur eru á því að hluturinn sé fjarlægður við dauðhreinsaðar aðstæður, eins og mikilvægt er til sýnatökunnar. Sé hluturinn sendur allur eða að hluta er hann látinn í dauðhreinsað ílát og sendur með hraði á Sýklafræðideildina.
      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
      Hide details for Geymsla ef bið verður á sendinguGeymsla ef bið verður á sendingu
      Mjög mikilvægt er að sýnið berist sem allra fyrst, sérstaklega ef um er að ræða hlut eða hluta af aðskotahlut. Ræktunarpinnar geymast lengur, í allt að sólarhring við stofuhita eða í kæli.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Vaxi bakteríur eða sveppir sem talin eru sjúkdómsvaldar er hringt og látið vita, samkvæmt mati vakthafandi læknis á Sýklafræðideild. Neikvæðri ræktun er svarað út eftir 5 daga, jákvæð gæti tekið lengri tíma.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      Þar sem umrædd tæki eru að jafnaði staðsett þar í líkamanum sem engir sýklar eru að eðlilegu, má gera ráð fyrir að bakteríur eða sveppir sem vaxi séu sýkingavaldar. Það eru þó alltaf einhverjar líkur á því að sýni mengist, sérstaklega af bakteríum frá húðinni. Því er æskilegt, séu tekin strok frá aðskotahlut, að strokin séu að minnsta kosti tvö. Vaxi sama tegundin af bakteríum eða sveppum frá fleiri en einu stroki eykur það mjög líkurnar á að þar sé kominn sýkingavaldur.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Karen C. Carroll og Michael A. Pfaller. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber og fél. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Washington D.C.

    Ritstjórn

    Kristján Orri Helgason - krisorri
    Una Þóra Ágústsdóttir - unat
    Ingibjörg Hilmarsdóttir
    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Kristján Orri Helgason - krisorri
    Ingibjörg Hilmarsdóttir

    Útgefandi

    Katrín Helga Óskarsdóttir - katrinho

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 11/14/2011 hefur verið lesið 46334 sinnum