../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-078
Útg.dags.: 12/09/2021
Útgáfa: 4.0
2.02.03.01.01 Hómócystein
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Hómócystein er amínósýra mynduð þegar methíónín gefur frá sér metýl-hóp. Hómócystein getur hvarfast við serín og myndað cysteine eða endurmetýlerast og er það efnahvarf örvað af methionine synthasa. Vítamínin fólat og B12 (kóbalamín) eru kóensím við þetta efnahvarf.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í glas (inniheldur EDTA) með fjólubláum tappa
án gels (svört miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner
Sýnið er kælt STRAX í ísvatn
i
og skilið niður innan 1 klst. Þegar búið er að taka plasmað ofan af rauðu blóðkornunum er hómócystein ekki lengur viðkvæmt fyrir geymslu og geymist 2 vikur í kæli og lengur í frysti.
Mæling gerð einu sinni í viku.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
<15 µmól/L.
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun
Hækkun:
Skortur á vítamínunum fólat og B12 (kóbalamín) veldur því að styrkur hómócysteins í plasma hækkar. Algengast er að hækkun á styrk hómócysteins í plasma sé vegna skorts á vítamínum eða vegna arfgengra þátta. Langvinn nýrnabilun og lifrasjúkdómar geta einnig valdið hækkun á hómócysteini í plasma.
Heimildir
Heimildir
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
Laurell Klinisk Kemi i Praktisk Medicin, Ninth Edition. Studentlitteratur. 2012
Upplýsingableðill HCYS, 2014-02, V 8.0 Roche Diagnostics, 2014
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »