../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-743
Útg.dags.: 11/07/2023
Útgáfa: 1.0
2.02.01.01 Posaconazol
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Posaconazol er breiðvirkt triazol sveppalyf með virkni gegn, t.d. Candida, Aspergillus, Cryptococcus og Mucormycosis. Lyfið er notað bæði til að meðhöndla ífarandi sveppasýkningar en einnig sem fyrirbyggjandi meðferð hjá sjúklingum með hvítkornafæð. Frásog posaconazols frá meltingarvegi er breytilegt. Frásog eykst samhliða inntöku á fæðu. Hámarksþéttni í blóði næst eftir 3 klst. ef lyfið er tekið með fituríkri máltíð. Dreifingarrúmmál posaconazols er stórt og próteinbinding er mikil. Tiltölulega lítið umbrot á sér stað (17%) og lyfið skilst að mestu leiti óbreytt út með hægðum. Meðalhelmingunartími brotthvarfs posaconazols er u.þ.b. 35 klst (á bilinu 20-66 klst) og jafnvægisstyrkur (steady state) næst eftir 7-10 daga meðferð.
Helstu ábendingar: Meðferðareftirlit. Sértaklega ef meðferð er ekki að skila tilætluðum árangri, ef sjúklingur hefur meltingafærasjúkdóma eða ef um er að ræða alvarlegar sveppasýkingar.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka: Við meðferðareftirlit skal safna sýni rétt fyrir venjulegan lyfjatökutíma. Sýni skal ekki tekið fyrr en jafnvægi er komið á lyfjastyrkinn í blóði sem er eftir 5 helmingunartíma lyfsins, þ.e. 7-10 daga (á bæði við í upphafi lyfjameðferðar og eins eftir breytingar á skömmtum).
Gerð og magn sýnis: Sermi, 0,5 ml. Sýni tekið í serum glas með rauðum tappa án gels (svört miðja) . Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymsla: Sýni geymist í kæli í 7 daga og í frysti í 3 mánuði.
Framkvæmd: Mælingin er gerð í Fossvogi, einu sinni í viku. Mælt á massagreini (LC-MS/MS).
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
Meðferðarmörk:
>0,7 mg/L ef fyrirbyggjandi meðferð.
>1,0 mg/L ef verið er að meðhöndla sveppasýkingu (>1,25 mg/L ef svörun er ófullnægjandi).
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun Meðferðarmörk miðast við lággildi (e. trough levels).
    Truflandi efni: Efni í geli í blóðtökuglasi geta truflað mælingar sem gerðar eru á massagreinum. Þar fyrir utan getur gel valdið falskri lækkun á styrk lyfs í blóðsýni með því að draga lyfið í sig. Þessi lækkun getur verið klínískt marktæk, háð rúmmáli sýnis og þeim tíma sem sýnið er geymt í glasinu.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Recipe, Instruction Manual, ClinMass TDM kit System, Antimycotics in Serum / Plasma. Document Version 2.0, Date of Release: 25.11.2019.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2017.

    Posaconazole: Drug information. www.uptodate (03.11.2022)
    Noxafil, Viðauki I, samantekt á eiginleikum lyfs. www.serlyfjaskra.is (03.11.2022)

        Ritstjórn

        Sigrún H Pétursdóttir
        Ingunn Þorsteinsdóttir
        Fjóla Margrét Óskarsdóttir
        Guðmundur Sigþórsson

        Samþykkjendur

        Ábyrgðarmaður

        Ísleifur Ólafsson

        Útgefandi

        Fjóla Margrét Óskarsdóttir

        Upp »


        Skjal fyrst lesið þann 11/25/2022 hefur verið lesið 96 sinnum