../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-095
Útg.dags.: 02/27/2023
Útgáfa: 3.0
2.02.04 Segulómun af höfði
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun Höfuð, heili, segulómun innra eyra/heyrnartaug.
Samheiti: MRI cerebrum, MRI brain.
Pöntun: Heilsugátt, Leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Blóðþurrð (infarct), parkison, MS, flogaveiki, æxli, meinvörp, fæðingargallar.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, raförvi (stimulator) og ýmis ígræddur málmur. VP-shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.

    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
      • Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn
      • Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi lyf (Dormicum 7,5 mg) enláta þarf vita með sólahrings fyrirvara og mæta 60 mínútum fyrir rannsókn.
      • Ekki má keyra í 24 klukkustundir eftir róandi lyf.
      • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir tímann til undirbúnings. Ef komið er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
      • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
      • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
      • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

      Til að tryggja öryggi við rannsókn er farið yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst.
      Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
      Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
      Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.

    Aðferð:
      • Oft er gefið skuggaefni, Gadovist í rannsókninni og þarf þá að setja æðalegg sem oftast er settur í handlegg. Hægt er að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
      • Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, hjálmur (loftnet) er settur yfir höfuð og bekkurinn færist inn í segulómtækið.
      • Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
      • Heyrnartól eru sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
      • Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.

    Tímalengd: 20 - 40 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safty
    2. Sectional Anatomy 1

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Ida Agata Egiert - agatai
    Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Maríanna Garðarsdóttir

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 02/03/2014 hefur verið lesið 1471 sinnum