../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-047
Útg.dags.: 03/14/2023
Útgáfa: 3.0
2.02.03.01.01 Kalprótektín í saur
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Kalprótektín (e. calprotectin) er prótein sem finnst í umfrymi ákveðinna gerða hvítra blóðkorna. Við bólgu í meltingarvegi safnast hvít blóðkorn á bólgusvæði og kalprótektín losnar frá þeim og inn í meltingarveginn. Kalprótektín er mjög stöðugt prótein og skilst út í saur án þess að vera brotið niður af þarmabakteríum. Mæling á styrk kalprótektíns í saur má því nota sem mælikvarða á bólguvirkni í meltingarvegi.
Helstu ábengingar:
Til að greina á milli starfrænna og vefrænna sjúkdóma í meltingarvegi (IBS vs. IBD screening).
Meðferðareftirlit og eftirfylgni sjúklinga með þarmabólgusjúkdóma (IBD monitoring).
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Undirbúningur sjúklings:
Saursýni má safna hvernær dags sem er og enginn sérstakur undirbúningur er nauðsynlegur.
Gerð og magn sýnis:
Saur, 1 - 5 g ( ~ ein teskeið). Kalprótektín í saursýnum er mjög stöðugt og óþarfi er að kæla sýni ef það berst á rannsóknarstofuna innan fjögurra daga frá söfnun. Sýni geymist í kæli í 7 daga. Saursýni sem eru mikið blóðmenguð eru óhæf fyrir rannsóknina.
Mæling gerð einu sinni í viku á rannsóknarkjarna Fossvogi.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
< 50 mg/kg.
Hærri gildi mælast oft hjá yngri börnum, sérstaklega börnum á fyrsta aldursári, en gildin fara síðan lækkandi og eftir 4 ára aldur eru viðmiðunarmörkin þau sömu og hjá fullorðnum.
Niðurstöður
Niðurstöður
Truflandi efni:
Saursýni sem eru mikið blóðmenguð eru óhæf fyrir rannsóknina.
Túlkun
1)
Greining á milli starfrænna og vefrænna sjúkdóma í meltingarvegi (IBS vs. IBD screening).
Á grundvelli einkenna getur oft reynst erfitt að greina á milli
starfrænna sjúkdóma
í meltingarvegi (t.d. ristilkrampa, (e. irritable bowel syndrome, IBS)) og
vefrænna sjúkdóma
eins og þarmabólgusjúkdóma (e. inflammatory bowel disease, (IBD)) þ.e sáraristilbógu (e. ulcerative colits) og svæðisgarnabólgu (e. Crohn’s disease). Styrkur kalprótektíns í saur greinir hinsvegar yfirleitt á milli.
Eðlilegur styrkur kalprótektíns í saur nánast útilokar virkan þarmabólgusjúkdóm. Kalprótektín á bilinu 50-100 mg/kg telst vera á gráu svæði og mælt er með að endurtaka mælinguna eftir 4-6 vikur. Ef styrkur kalprótektíns er > 100 mg/kg er um klára hækkun að ræða. Það staðfestir þó ekki greiningu þarmabólgusjúkdóms þar sem aðrir sjúkdómar í meltingarvegi geta valdið hækkun og frekari uppvinnslu er þörf. Mæling á kalprótektíni í saur hjálpar til við að velja út þá sjúklinga sem þarf að rannsaka frekar, t.d. með ristilspeglun og/eða myndgreiningarrannsóknum.
2)
Meðferðareftirlit og eftirfylgni sjúklinga með þarmabólgusjúkdóma (IBD monitoring).
Þarmabólgusjúkdómar eru krónískir bólgusjúkdómar í neðri hluta meltingarvegs. Klínískur gangur þarmabólgusjúkdóma einkennist oft af tímabilum virks sjúkdóms með sjúkdómshléum á milli.
Gott samband er á milli magns kalprótektíns í saur og virkni þarmabólgusjúkdóms og mælingin gagnast því við eftirfylgni þessara sjúklinga, sérstaklega til að greina byrjandi bakslag eftir sjúkdómshlé og eins til að stilla inn og stýra meðferð.
3) Við
illkynja æxli í meltingarvegi (t.d. ristilkrabbamein
) getur sést hækkun á kalprótektín. Mælingin er hinsvegar hvorki nógu næm né sérhæfð til að mælt hafi verið með henni til að skimunar.
4)
Gigtarlyf (e. NSAIDs
) geta valdið bólgu í neðri hluta meltingarvegs (NSAID-enteropathy) og hjá þessum sjúklingum sem taka þessi lyf getur kalprótektín mælst hækkað.
5) Við
bráðar sýkingar í meltingarvegi
hækkar kalprótektín.
Heimildir
Heimildir
Calprolab Calprotectin ELISA (ALP), upplýsingabæklingur með hvarfefnum, Version 07 (07.07.2014).
Faecal calprotectin diagnostic tests for inflammatory diseases of the bowel, NICE Diagnostic
Guidance, published: 2 October 2013.
Clinical Biochemistry of the Gastrointestinal Tract, Ingvar Bjarnason and Roy Sherwood, Chapter 12 in Clinical Biochemistry - Metabolic and Clinical Aspects, William J. Marshall, Martha Lapsley, Andrew P. Day, Ruth M. Ayling, Churchill Livingstone Elsevier, 2014.
Clinical utility and diagnostic accuracy of faecal calprotectin in IBD at first presentation to gasteroenterology services in adults aged 16-50 years. Kennedy et al. Journal of Crohn´s and Colitis, 9(1):41-9,2015.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Guðmundur Sigþórsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »