../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-156
Útg.dags.: 09/05/2022
Útgáfa: 3.0
2.02.03.01.01 PSA Frítt
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Prostata sértækt antigen (PSA) er prótein með sameindarþunga um 34 kD og er próteinkljúfandi ensým af flokki kallikrein-líkra serín próteinasa. Hlutverk þess er að kljúfa eða brjóta upp sega (coagel), sem myndast í sæðisvökva. Próteinið er nær eingöngu myndað í blöðruhálskirtilsfrumum og kirtilþekju, en brjóstavefur getur einnig losað PSA í örlitlu magni. PSA styrkur er hár í vef blöðruhálskirtils, í sæðisblöðrum og í sæði. Í plasma er stærstur hluti PSA bundinn við proteasa inhibitora, fyrst og fremst alfa-1-antichymotrypsín (80-85%) og alfa-1-antitrypsín, sem og alfa-2-macroglobulin. Hjá heilbrigðum er 10-30% af PSA í plasma frítt eða ekki bundinn proteasa inhibitorum. Helmingunartími frís PSA í plasma er stuttur eða um 1,5 klst.
Mælingar á heildarmagni PSA í plasma/sermi ná til alls frís PSA og þess sem er bundið alfa-1-antichymotrypsíni, en ekki þess PSA sem er bundið alfa-2-macroglóbúlíni. Hægt að mæla fría hlutann eingöngu og eru niðurstöður þeirrar mælingar metnar með hliðsjón af mældu heildarmagni PSA. Hjá karlmönnum með blöðruhálskirtilskrabbamein er hlutfall frís PSA og heildar-PSA lækkað miðað við það sem er hjá heilbrigðum karlmönnum og þeim sem hafa ofvöxt blöðruhálskirtils. Ekki eru til viðmiðunarmörk fyrir hlutfall frís PSA/heildar PSA, en kvóti sem er
< 0,18 eykur líkurnar á að um blöðruhálskirtilskrabbamein sé að ræða.
PSA, frítt mælingin er gerð með electrochemiluminiscence immunoassay með hvarfefnum (einstofna mótefnum) frá Roche Diagnostics.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
0,5 ml plasma.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner
Geymist 5 daga í kæli, 6 mánuði í frysti.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar á rannsóknakjarna Hringbraut.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Ekki eru til viðmiðunarmörk fyrir hlutfall frís PSA/heildar PSA, en kvóti sem er < 0,18 eykur líkurnar á að um blöðruhálskirtilskrabbamein sé að ræða.
Eins og með aðrar rannsóknaniðurstöður skal meta þær með hliðsjón af sjúkrasögu, klínískra einkenna og klínískrar skoðunar.
Niðurstöður
Niðurstöður
Túlkun
Hækkun:
PSA styrkur er hækkaður í plasma hjá um 80% sjúklinga með blöðruhálskirtilskrabbamein, en hafa skal í huga að sjúklingar með ofvöxt í kirtlinum eða bólgur eru einnig með hækkun. PSA hækkanir, sem eru meiri en 10-12 µg/L, benda til krabbameins.
PSA mælingar eru mikið notaðar til að meta árangur meðferðar við blöðruhálskirtilskrabbameini.
Sjúklingar sem fá háa biotin-vítamína skammta (>5 mg/dag) verða að láta a.m.k. 8 klst. líða frá bíótín inntöku þar til sýni er tekið að öðrum kosti má búast við falskri hækkun.
Heimildir
Heimildir
1. Method Sheet, Free PSA. REF03289788 190, V13.0. Roche Diagnostics, 2019-01.
2. Laurells Klinisk kemi í praktisk medicin. Studentlitteratur, Lund, Svíþjóð, 2012; síða 588-89.
3. Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fourth Edition. Elsevier Saunders, 2006.
Ritstjórn
Sigrún H Pétursdóttir
Ísleifur Ólafsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »