../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-034
Útg.dags.: 08/06/2024
Útgáfa: 2.0
2.02.01.01 INR
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Til að samræma niðurstöður mismunandi PT hvarefna er svarið gefið upp sem International Normalized Ratio (INR). Með þessari aðferð umreikna rannsóknastofur svör úr storkuprófum skv. sérstökum stuðlum, sem eru breytilegir eftir hversu sterkt thrombóplastin er notað. Á þann hátt verður til gildi, sem á að vera sambærilegt í öllum megindráttum á milli þeirra rannsóknastofa sem nota INR.
Á Landspítala er mælt Fiix próf (Fiix prothrombin tími) umreiknað í INR (Fiix-NR).
Fiix PT er aðeins næmt fyri
r
lækkun á storkuþáttum II og X.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Blóð tekið í glas (inniheldur 3,2% natríum sítrat) með bláum tappa án gels (svört miðja)
.
Litakóði samkvæmt Greiner
.
Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
Ath:
Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki kreppa og rétta úr hnefa.
Sýnaglas skilið niður í skilvindu við 20°C og 3000 rpm í 10 mínútu. Mælingin er gerð á plasma.
Mælingin skal gerð innan 2 daga frá blóðtöku.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Plasma geymist 2 daga við 20±5°C
Plasma geymist fryst við - 70°C.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Fiix-NR í eðlilegu plasma er 0,8 - 1,20
Læknar ákvarða meðferðarmörk sjúklinga á K vítamín hemlum eins og warfaríni en hæfileg blóðþynning er í flestum tilfellum INR 2,0 - 3,0. Sjúklingar með gerfihjartalokur eru yfirleitt blóðþynntir meira (INR 2,5 - 3,5). Einstaka eru blóðþynntir meira 1,5 til 2,5.
Niðurstöður
Niðurstöður
Svar:
INR gildi
Túlkun
Hækkun:
Öll hækkun á INR þýðir að blæðingarhætta er aukin og því meira sem INR hækkar, ss þegar er yfir 4,5.
Heimildir
Heimildir
Ritstjórn
Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Páll Torfi Önundarson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Páll Torfi Önundarson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »