../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmein-109
Útg.dags.: 05/31/2024
Útgáfa: 1.0
2.02.02.01 Stungusýni
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Frumurannsókn - stungusýni

Markmið rannsóknar: Smásjárskoðun fruma og sjúkdómsgreining.

Pöntun: Beiðni um frumurannsókn / Rafræn beiðni
Sjá skjal 
Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna

Verð: Sjá Gjaldskrá

Ábendingar: fyrirferðir eða hnútar. Ef grunur er um eitlakrabbamein sendist annað sýni í frumuflæðisjá.

Mögulegar viðbótarrannsóknir: Mótefnalitanir, sérlitanir, sameindameinafræði, frumuflæðisjá.
Hide details for SýnatakaSýnataka
Ílát og áhöld:
Ílát merkt á viðeigandi hátt, sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Gerð og magn sýnis:
Ástunga á fyrirferð sem þreifast eða er staðsett með ómskoðun, CT eða annarskonar tækni. Mest 4 gler frá hverri fyrirferð/hnút. Í tilfelli vörtuvessa meðhöndlast eins og stungusýni frá brjósti (fixeruð gler).

Lýsing sýnatöku:
Sýni strokið út á gler, jafnt og þunnt. Hægt er að setja hluta sýnis í alkóhól.
Smásjárgler merkt með kennitölu og nafni/upphafsstöfum og hvernig sýni er fixerað. Notið blýant.
  • Fixeruð gler: Smásjárgler fixeruð í 99% etanóli í 15-20 mín. Gler tekin úr etanóli og þerruð áður en þau eru sett í glerjabox til sendingar.
  • Loftþurrkuð gler: Sýni látin þorna vel og hratt á gleri áður en þau eru sett í glerjabox til sendingar.
Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
Sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sýni geymast við stofuhita.

Flutningskröfur:
Sýni skal senda strax til meinafræðideildar.
Hide details for SvartímiSvartími
Svartími er skilgreindur sem fjöldi virkra daga frá því að sýnið er móttekið á rannsóknastofunni og þar til staðfest svar er birt í Heilsugátt.

Svartími: 3 dagar (ástunga á skjaldkirtil 5 dagar).
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Rannsóknarsvar er birt í Heilsugátt og sendar beiðandi lækni skriflega sé viðkomandi utan hennar.
Í sumum tilfellum er viðbótarsvar sent út eftir að rannsóknarsvar hefur verið gefið út.
Ekki er sent út afrit af svarið innan Landspítalans. Hægt er að óska eftir afriti hjá riturum meinafræðideildar í síma 543-8355
Rannsóknarsvar eru í þremur hlutum: lýsing, smásjárskoðun og frumugreining.

    Ritstjórn

    Ingibjörg Guðmundsdóttir - ingibgud
    Jurate Ásmundsson - juratea
    Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Jón G Jónasson

    Útgefandi

    Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 07/15/2015 hefur verið lesið 145 sinnum