../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-057
Útg.dags.: 01/04/2017
Útgáfa: 2.0
2.02.05.06.101 TS lungu HRCT
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af lungum (HRCT - Háskerpurannsókn).
Samheiti: CT thorax (HRCT - High resolution).
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Interstitial lungnasjúkdómar, s.s. fibrosa, lungnaþemba o.fl.
Frábendingar: Þungun.
    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur: Enginn en mælt er með að fjarlægja hálsmen áður en komið er í rannsókn.

    Aðferð: Við rannsókn af lungum þarf að liggja á bakinu á rannsóknarbekk og setja hendur upp fyrir höfuð.
    Mikilvægt er að liggja kyrr meðan rannsókn er framkvæmd til að forðast myndgalla.
    Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd. Það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand líffæra og æða.

    Tímalengd: 15 mín.

    Eftirmeðferð: Engin.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

    Ritstjórn

    Alda Steingrímsdóttir
    Svanhvít Hulda Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Pétur Hannesson

    Útgefandi

    Alda Steingrímsdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/06/2015 hefur verið lesið 958 sinnum