../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-045
Útg.dags.: 02/17/2015
Útgáfa: 1.0
2.02.05.06.101 TS innri-og miðeyru
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Tölvusneiðmyndir af eyrum.
Samheiti: CT ear.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Fæðingargalli,sýking, æxli o.fl.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi. Þungun.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna inn á innraneti LSH, sjá Heilsugátt. Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur sykursýkislyf sem inniheldur Metformin, sem eru lyf eins og Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin og nýrnastarfsemi er eðlileg skal hætta inntöku metformin-lyfs rannsóknardag og byrja ekki aftur fyrr en 48 klst. eftir rannsóknina.
    Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn er æskilegt að endurtaka serum kreatínin mælingu eftir rannsókn.
    Sjúklingur með skerta nýrnastarfsemi sem tekur metformin-lyf skal hætta töku lyfs 48 klst. fyrir rannsókn og 48 klst. eftir skuggaefnisgjöf.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.

Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Enginn. Mælt er með að fjarlægja alla skartgripi fyrir rannsókn.
  • Ef vitað er um ofnæmi fyrir skuggaefni sem gefið er í æð á röntgen þarf undirbúning, sjá frábendingar.
  • Stundum þarf að hætta töku sykursýkislyfja sjá frábendingar.

Aðferð: Við rannsókn af höfði þarf að liggja á baki á rannsóknabekk með höfuð í sérstöku statífi og band er sett á enni til að forðast hreyfingu.
Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn fer fram til að forðast myndgalla.
Stundum þarf að gefa skuggaefni, visipaque í æð og í þeim tilvikum er settur upp æðaleggur í handlegg.
Geislafræðingur framkvæmir rannsóknina. Við tölvusneiðmyndir er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun og hægt er að skoða myndir í öllum mögulegum sniðum og í tví- og þrívídd. Það getur gefið ítarlegar upplýsingar um ástand æða og beina.

Tímalengd: 20 mín.

Eftirmeðferð: Engin, en gott er að vera í góðu vökvajafnvægi og drekka vel af vatni eftir skuggaefnisgjöf.

Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir í heilsugátt á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 03/03/2015 hefur verið lesið 1164 sinnum