../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Resd-119
Útg.dags.: 01/10/2024
Útgáfa: 2.0
2.02.04.41 Próf fyrir sex þekktum erfðabrigðum í DPYD geni
    Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
    Heiti rannsóknar: Próf fyrir sex þekktum erfðabrigðum í DPYDgeni.
    Annað heiti rannsóknar:
    Markmið rannsóknar: Greining á arfgerð eftirfarandi erfðabriga, *2A (rs3918290 a.k.a. c.1905+1G>A), *13 (rs55886062 einnig þekkt sem c.1679T>G), rs67376798 (einnig þekkt sem c.2846A>T), og þremur afbrigðum sem mynda HapB3 setröðina; rs75017182 (einnig þekkt sem c.1129-5923C>G), rs56038477 (c.1236G>A), og rs56276561 (c.483+18G>A) í DPYD-geni, sem eru tengd við aukna hættu á alvarlegri eða banvænum eiturverkunum við inntöku á 5-FU lyfjameðferð. Samkvæmt tilkynningu frá Lyfjastofnun (júní 2020) er ráðlagt að prófa krabbameinssjúklinga fyrir DPD-skorti áður en lyfjum sem innihalda 5-flúoróúracíl (i.v.), capecítabín og tegafur, er tilvísað.
    Aðferð: DNA einangrað úr EDTA storkuvörðu blóði og fragment analýsa með 3500Dx súluraðgreini.
    Eining ESD: Sameindaerfðarannsóknir.
    Ábendingar: Fyrir 5-Fluoruracil (5-FU) lyfjameðferð sem er notuð til meðhöndlunar á margs konar krabbameini, þar á meðal höfuð og háls-, bris-, maga- og ristilkrabbameins.
    Pöntun: Annað hvort er pantað í gegnum Heilsugátt eða pappírsbeiðni send með sjá Beiðni - Erfðarannsóknir (DNA rannsóknir)
    Verð: Grunngjald 125 einingar, viðbætur sjá Gjaldskrá

    Hide details for Undirbúningur sjúklings og sýniUndirbúningur sjúklings og sýni
    Upplýst samþykki: Einstaklingur skal vera upplýstur um þýðingu erfðafræðirannsókna og mögulegar niðurstöður. Einstaklingur þarf ekki að vera fastandi.
    Upplýsingar um skriflegt samþykki og eyðublað er að finna hér.
    Tegund sýnaglas: EDTA blóð - fjólublár tappi.
    Magn sýnis: 4-10 ml
    Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
    Geymsla og flutningur: Sýni er stöðugt án kælingar í 5 daga.
    Hide details for Niðurstaða og túlkunNiðurstaða og túlkun
    Svar er gefið er upp samkvæmt nafngift þar kemur fram hvort einstaklingur sé með 2A (rs3918290 a.k.a. c.1905+1G>A), *13 (rs55886062 einnig þekkt sem c.1679T>G), rs67376798 (einnig þekkt sem c.2846A>T), og þremur afbrigðum sem mynda HapB3 setröðina; rs75017182 (einnig þekkt sem c.1129-5923C>G), rs56038477 (c.1236G>A), og rs56276561 (c.483+18G>A) í DPYD geni ásamt arfgerðum einstaklingsins. Erfðabrigðin eru ekki einu orsök DPD skorts og útiloka ekki aðrar sjaldgæfar orsakir DPD skorts. Hægt er að senda sýni í ítarlegri stökkbreytingaleit sé þess óskað.
    Niðurstöður eru birtar í Heilsugátt en skriflegar niðurstöður eru aðeins sendar beiðandi lækni sé þess sérstaklega óskað.

    Ritstjórn

    Eiríkur Briem - eirikubr
    Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur
    Jón Jóhannes Jónsson
    Sif Jónsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Jón Jóhannes Jónsson

    Útgefandi

    Sigríður Helga Sigurðardóttir - sigsigur

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 12/18/2023 hefur verið lesið 52 sinnum