../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmein-150
Útg.dags.: 05/31/2024
Útgáfa: 1.0
2.02.02.01 Burstasýni frá gallgangi
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Frumurannsókn - burstasýni frá gallgangi.

Markmið rannsóknar: Smásjárskoðun fruma í gallvegum og sjúkdómsgreining.

Pöntun: Beiðni um frumurannsókn / Rafræn beiðni
Sjá skjal 
Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna

Verð: Sjá Gjaldskrá

Mögulegar viðbótarrannsóknir: Mótefnalitanir, sérlitanir, sameindameinafræðilegar rannsóknir.
Hide details for SýnatakaSýnataka
Ílát og áhöld: bursti, smásjárgler, etanól, glerjabox, sýnaglas með þéttum tappa, saltvatn.
Ílát merkt á viðeigandi hátt, sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Gerð og magn sýnis:
Burstasýni frá gallgangi strokið á smásjárgler og bursti í 5ml saltvatni.

Lýsing sýnatöku:
Bursta strokið á sýnatökustað og sýni strokið á gler, bursta strokið aftur eftir sýnatökusvæði og settur í 5ml af saltvatni.
Smásjárgler merkt með kennitölu og nafni/upphafsstöfum. Notið blýant.
Smásjárgler fixeruð í 99% etanóli í 15-20 mín. Gler tekin úr etanóli og þerruð áður en þau eru sett í glerjabox til sendingar.
Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
Sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sýni má geyma við stofuhita.

Flutningskröfur:
Sýni skal senda til meinafræðideildar með næstu ferð.
Hide details for SvartímiSvartími
Svartími er skilgreindur sem fjöldi virkra daga frá því að sýnið er móttekið á rannsóknastofunni og þar til staðfest svar er birt í Heilsugátt.

Svartími: 3 dagar

Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Rannsóknarsvar er birt í Heilsugátt og sendar beiðandi lækni skriflega sé viðkomandi utan hennar.
Í sumum tilfellum er viðbótarsvar sent út eftir að rannsóknarsvar hefur verið gefið út.
Ekki er sent út afrit af svarið innan Landspítalans. Hægt er að óska eftir afriti hjá riturum meinafræðideildar í síma 543-8355
Rannsóknarsvar eru í þremur hlutum: lýsing, smásjárskoðun og vefjagreining.

    Ritstjórn

    Ingibjörg Guðmundsdóttir - ingibgud
    Jurate Ásmundsson - juratea
    Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Jón G Jónasson

    Útgefandi

    Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 05/04/2023 hefur verið lesið 17 sinnum