../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-111
Útg.dags.: 12/28/2023
Útgáfa: 3.0
2.02.04 Segulómun af brjóstholi
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Segulómun brjósthol.
Samheiti: MRI thorax, MRI brachial plexus, segulómun lungu, segulómun brjóstkassi/bringubein
Pöntun: Heilsugátt og Leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.

Heiti rannsóknar: Segulómun brjósthol
Samheiti: MRI Thorax
Pöntun: Heilsugátt, leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Meinvörp, æxli,sýking, annað.
Frábendingar: Gangráður, ígrædd heyrnartæki, æðaklemmur, pumpur, raförvi (stimulator), og ýmis ígræddur málmur. VP-shunt þarf stundum að stilla.
Mögulegar frábendingar eru mikil innilokunarkennd eða yfirþyngd.

Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif segulómunar á fóstur. Rannsókn af ófrískum konum er aðeins framkvæmd þegar brýn nauðsyn þykir.

Athugið: Undantekningar eru á sumum frábendingum og þarf því oft að kanna framleiðanda og/eða aðgerðalýsingu fyrir hvert tilfelli íhluta.

    Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

    Undirbúningur:
    • Enginn undirbúningur er fyrir þessa rannsókn
    • Þeir sem eru með mikla innilokunarkennd geta fengið róandi lyf (Dormicum 7,5 mg) en láta þarf vita með sólahrings fyrirvara og mæta 60 mínútum fyrir rannsókn. Ekki má sofna í rannsókninni.
    • Ekki má keyra í 24 klukkustundir eftir róandi lyf.
    • Mikilvægt er að mæta 10 mínútum fyrir tímann til undirbúnings. Ef komið er eftir að rannsóknartími hefst gæti þurft að fresta rannsókn og gefa nýjan tíma.
    • Bráðatilfelli geta komið upp á spítalanum sem geta valdið töfum á tíma.
    • Gott er að skilja skartgripi eftir heima en í lagi er að vera með gullhringi.
    • Velkomið er að hafa aðstandanda með sér.

    Til að tryggja öryggi við rannsókn þarf að fara yfir gátlista/spurningar áður en rannsókn hefst.
    Fjarlægja þarf alla lausa málmhluti og klæðast sjúkrahússlopp til að koma í veg fyrir að málmhlutir á fötum trufli rannsóknina.
    Greiðslukort og önnur skilríki með segulrönd geta eyðilagst ef þau koma inn í rannsóknarherbergið.
    Verðmæti eru geymd í læstum skáp í búningsklefa.

    Aðferð:
    Oft er gefið skuggaefni í æð, Gadovist og þarf þá að setja æðalegg sem oftast er settur í handlegg. Hægt er að gefa skuggaefni í lyfjabrunn.
    Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
    Liggja þarf á baki á rannsóknarbekk, stórt belti (spóla) er sett yfir brjósthol og bekkurinn færist inn í segulómtækið.
    Nauðsynlegt er að liggja kyrr á meðan rannsókn stendur.
    Heyrnartól eru sett yfir eyru vegna hávaða í tæki og hægt er að hlusta á útvarp eða geisladisk.
    Allir fá öryggishnapp til að geta gert vart við sig ef þeir finna fyrir óþægindum eða innilokunarkennd.
    Anda þarf reglulega og taktfast allan tímann. Nokkrum sinnum þarf að halda inni andanum í 10 - 20 sekúndur. Mikilvægt er að fylga fyrirmælum geislafræðings með öndun.

    Tímalengd: 30 - 60 mínútur

    Eftirmeðferð: Engin
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni sem einnig getur skoðað niðurstöður í heilsugátt.

    Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.
    Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. MR safety
    2. Selectional Anatomy 2

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Ida Agata Egiert - agatai
Guðrún Ólöf Þórsdóttir - gudol
Svanhvít Hulda Jónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Maríanna Garðarsdóttir

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 01/26/2015 hefur verið lesið 163 sinnum