../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-087
Útg.dags.: 12/09/2021
Útgáfa: 5.0
2.02.01.01 Ig-G
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: IgG er myndað úr tveimur gammakeðjum og tveimur kappa- eða lambdakeðjum. IgG er að magni um 70-75% mótefna í blóði. Mikið af IgG í millifrumuvökva (ca. 65% IgG er utan æða). Eina mótefnið, sem fer í gegnum legköku frá móður til fósturs.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerðSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerð
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.

Sýni geymist í viku í kæli og 8 mánuði við -20°C
Mæling gerð alla virka daga
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
Aldur
IgG: g/L
1/2-2 mán
2,6 - 7,4
3-6 mán
1,2 - 8,6
7-11 mán
3,0 - 9,9
1-2 ára
3,5 - 10,5
3-4 ára
4,1 - 11,1
5-6 ára
4,7 - 12,2
7-16 ára
5,4 - 14,1
Fullorðnir
6,1 - 15,7


    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Túlkun
    Hækkun: Sérstök IgG hækkun (engin hækkun á IgA og IgM) er mest við sjúkdóma, sem gefa einstofna aukningu (paraprótein, M- komponent) af gerðinni IgG . Minni aukning sést við vissa sjálfsónæmissjúkdóma og langvinna lifrarbólgu. Aukning IgG samfara aukningu á IgA og IgM sést við flestar sýkingar (bakteríur, veirur, parasita).
    Lækkun: Primert við hypogammaglobulinæmiu. Einnig lækkun við aðra sjúkdóma, t. d. meinvörp í beinum og við mergæxli, þar sem einstofna mótefnið er ekki af IgG-gerð. Einnig stundum við prótein tap um nýru og meltingaveg.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill IGG-2, 2016-04, V 11.0 Roche Diagnostics, 2016
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders. 2012

    Ritstjórn

    Sigrún H Pétursdóttir
    Ingunn Þorsteinsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Ísleifur Ólafsson

    Útgefandi

    Sigrún H Pétursdóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 03/04/2011 hefur verið lesið 2075 sinnum