../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmein-134
Útg.dags.: 01/25/2023
Útgáfa: 1.0
2.02.02.02 Leghálssýni - skimun fyrir leghálskrabbameini
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Frumurannsókn - leghálssýni - skimun fyrir leghálskrabbameini

Markmið rannsóknar: Greining leghálskrabbameina og forstigsbreytinga með smásjárskoðun á sýni frá leghálsi.

Pöntun:
Rafræn skimunarbeiðni gegnum Sögu eða
Embætti landlæknis send til Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.
Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana sendir rafræna rannsóknarbeiðni, sem stofnuð út frá skimunarbeiðni, hjá
Skimunarskrá landlæknis.

Verð: 20 einingar. Sjá Gjaldskrá

Ábendingar:
Konum á aldrinum 23-64 ára er boðið að mæta í leghálsskimun.

    • Hjá konum á aldrinum 23-29 ára er frumuskoðun alltaf framkvæmd og HPV mæling er gerð í kjölfarið ef lággráðu frumubreytingar greinast endurtekið í frumusýnum.
    • Hjá konum á aldrinum 30-59 ára er HPV mæling gerð á leghálssýnum þeirra og frumuskoðun gerð í kjölfarið á HPV jákvæðu sýni.
    • Konum á aldrinum 60-64 ára er boðið að mæta í síðustu sýnatöku vegna skimunar. Sýnin eru HPV mæld og ef þau eru HPV neikvæð eru konurnar útskrifaðar úr leghálsskimun.

Konur á öllum aldri með einkenni sem geta bent til leghálskrabbameins t.d. óþægindi við samfarir, blæðingar eftir samfarir, blæðingar eftir tíðarhvörf eða óreglulegar blæðingar. Einkennasýni fara bæði í frumuskoðun og HPV mælingu. Einnig eru tekin sýni hjá konum sem eru í eftirliti eftir keiluskurð vegna forstigsbreytinga og hjá sérstökum áhættuhópum.

Mögulegar viðbótarrannsóknir: HPV mæling (veirufræðideild)
Hide details for SýnatakaSýnataka
Ílát og áhöld:
Bursti frá Hologic. Sýni eru tekin í ThinPrep Pap Test glös sem framleidd eru af Hologic. Glösin innihalda 20 ml af ThinPrep PreservCyt vökva. Ekki skal nota sýnaglös sem eru útrunnin en þá dagsetningu má finna á sýnaglasinu sjálfu.
Sýni geymist í glasi í 6 vikur frá sýnatöku.

Glas merkt á viðeigandi hátt, sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Gerð og magn sýnis:
Einn bursti sem snúið hefur verið í 5 heila hringi í kringum leghálssinn í 20 ml af PreservCyt vökvaglasi. Ef vantar vökva í sýnaglas þarf að bæta PreservCyt vökva út í glasið.
Ekki má setja PBS buffer, saltvatn, alkóhól eða lausnir sem innihalda formalín í glasið í staðinn þar sem það getur haft áhrif á greiningu sýnisins.


Lýsing sýnatöku:
Undirbúningur
Helst ekki nota sleipiefni eða gel en ef þörf er á því að nota þunnt lag af carbomer-fríu sleipiefni eða geli. Fyrir bestu sýnatöku getur hjálpað að fjarlægja slím, útferð og bólgu útferð sem til staðar eru á leghálsinum með grisju. Vökvasýnatækin gera ekki greinamun á frumum sem þörf er á að skoða, eins og flöguþekju- og kirtilþekjufrumum og frumum sem ekki nýtast við greiningu, eins og bólgufrumum, blóði eða slími. Ekki hreinsa leghálsinn með saltvatni þar sem það getur leitt til of fárra frumna í sýni.

Sýnataka
Leghálssýni eru tekin með bursta sem framleiddur er af Hologic. Til að ná algjörlega fullnægjandi sýni þarf miðja burstans að ná inn í innanleghálsgöngin þannig að stuttu broddarnir á burstanum strjúki ytra yfirborði leghálssins. Ýta þarf burstanum mjúklega í leghálsinn og snúa burstanum í fimm heila hringi. Þegar búið er að taka sýnið er burstinn með frumunum settur eins fljótt og hægt er í PreservCyt lausnina sem er til staðar í sýnaglasinu, frumur eru losaðar af bursta í vökva og bursti fjarlægður.
Ekki má skilja hausinn af burstanum eftir í sýnaglasinu.

Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla

Merking, frágangur og sending sýna og beiðna
Sjá skjal Útfylling beiðna, merking, frágangur og sending sýna.

Að auki skal auðkenna sýni og beiðnir skv. skimunarferli sýnis:
      • B forskeyti: bæði HPV mælingar- og frumurannsóknarbeiðni stofnuð
      • H forskeyti: einungis HPV mælingar beiðni stofnuð
      • M forskeyti: einungis frumurannsóknarbeiðni stofnuð
Sýni skulu berast meinafræðideild innan tveggja vikna frá sýnatöku.

Geymsla ef bið verður á sendingu:
Sýni skal geyma og senda við stofuhita (15-30°C). Hægt er að rannsaka sýnin í 6 vikur eftir að sýni hafa verið tekin.

Eftir að sýnaglösin hafa farið í frumurannsókn og HPV mælingu eru þau geymd í 1 mánuð ef bæta þarf við HPV mælingu eða frumuskoðun.


Flutningskröfur:
Passa þarf að loka sýnaglösum vel fyrir sendingu þannig að svarta línan á lokinu endi vinstra megin við svörtu línuna á glasinu. Ef glasið er ekki nógu vel lokað er hætta á að vökvinn leki.

Hide details for SvartímiSvartími
Svartími er skilgreindur sem fjöldi virkra daga frá því að sýnið er móttekið á rannsóknastofunni og þar til staðfest svar er birt í Heilsugátt.

Svar við frumurannsókn á leghálssýnum best innan 10 daga (í 95% tilfella).

Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Niðurstöður birtast í Heilsugátt og í Skimunarskrá landlæknis

Sjá flæðirit Landlæknis vegna leghálsskimunar

Konur á aldrinum 23-29 ára: sýni frá konum á þessum aldri eru alltaf frumuskoðuð fyrst.

    • Eðlilegt sýni: konur mæta aftur í sýnatöku eftir þrjú ár
    • Ófullnægjandi sýni: nýtt sýni er tekið innan 3 mánaða.
    • Frumubreytingar
      • Ascus og LSIL: nýtt sýni eftir 6 mánuði.
        • Ef seinna sýnið er eðlilegt er tekið næsta sýni eftir 12 mánuði.
        • Ef seinna sýnið er aftur greint með Ascus eða LSIL er það sent í HPV mælingu en ef sýnið er HPV neikvætt er næsta sýni tekið eftir 3 ár, ef það er ófullnægjandi í HPV mælingu þá er nýtt sýni tekið eftir 3 mánuði og ef það er HPV jákvætt er send tilvísun í leghálsspeglun.
        • Ef seinna sýnið er greint með hágráðu frumubreytingar (Asc-H, HSIL, CIS, AGC eða AIS): send tilvísun í leghálsspeglun.
      • Asc-H, HSIL, CIS, AGC og AIS:
Konur á aldrinum 30-59 ára: sýni sem tekin eru í skimun eru alltaf HPV mæld fyrst og aðeins er framkvæmd frumuskoðun hjá þeim konum sem eru HPV jákvæðar eða eiga að vera í eftirliti.
    • Eðlilegt sýni: tekið nýtt sýni eftir 12 mánuði og sent aftur í HPV mælingu og aðeins gerð frumuskoðun ef það sýni er HPV jákvætt.
      • Ef jákvæð fyrir HPV týpum öðrum en 16 og 18 (HPVa) og eðlilegt frumusýni: nýtt sýni eftir 12 mánuði
      • Ef jákvæð fyrir HPV16 eða HPV18: send tilvísun í leghálsspeglun.
      • Ef seinna sýnið er greint með einhverjar frumubreytingar (Ascus, LSIL, Asc-H, HSIL, CIS, AGC eða AIS): send tilvísun í leghálsspeglun.
    • Ófullnægjandi sýni: nýtt sýni tekið eftir 3 mánuði
    • Frumubreytingar
      • Ascus og LSIL:
        • Ef HPVa jákvæð: nýtt sýni eftir 12 mánuði og seinna sýnið fer í sama ferli og ef fyrra sýnið hafi verið eðlilegt.
        • Ef HPV16 eða HPV18 jákvæð: send tilvísun í leghálsspeglun.
      • ·Asc-H, HSIL, CIS, AGC og AIS: tilvísun í leghálsspeglun.
    • Ef fyrsta sýni eða seinni sýna verða neikvæð í HPV mælingu þá er næsta sýni tekið eftir 5 ár.

Konur á aldrinum 60-64 ára: sýni sem tekin eru í skimun eru alltaf HPV mæling fyrst og aðeins er framkvæmd frumuskoðun hjá þeim konum sem eru HPV jákvæðar eða eiga að vera í eftirliti. Hjá þessum aldurshóp er frumuskoðun aðeins gerð ef HPVa jákvæðar en send er tilvísun í leghálsspeglun ef konur eru jákvæðar fyrir HPV16 eða HPV18, óháð frumuniðurstöðu.

    • Eðlilegt sýni: HPV og frumurannsókn eftir 12 mánuði
      • Ef sýnið er HPV neikvætt og eðlileg frumuniðurstaða: konan útskrifuð úr leghálsskimun
      • Ef sýnið er HPV jákvætt: send tilvísun í leghálsspeglun óháð frumuniðurstöðu
      • Ef sýnið er HPV neikvætt en frumubreytingar greinast: send tilvísun í leghálsspeglun.
    • Ófullnægjandi sýni: tilvísun í leghálsspeglun.
    • Frumubreytingar Ascus, LSIL, Asc-H, HSIL, CIS, AGC eða AIS: tilvísun í leghálsspeglun.
Hide details for HeimildirHeimildir
Holocic, Inc. Protocol: Rovers Cervex-Brush Combi devicel.http://www.holocic.com

Holocic, Inc. ThinPrep 5000 Processor Operator's Manual. http://www.holocic.com

Holocic, Inc. ThinPrep 5000 Pap Test: specimen collectionl.http://www.holocic.com

Holocic, Inc. Thinprep Pap Test Lubricant Compatibility List. http://www.holocic.com

Krabbameinsfélagið (18. janúar 2023). Leghálskrabbamein.Fengið frá http://www.krabb.is.

Landlæknir (18. janúar 2023). Flæðirit vegna leghálsskimunar kvenna.Fengið frá https://www.landlaeknir.is/

Landlæknir (18. janúar 2023). Skimun fyrir leghálskrabbameini. Fengið frá https://www.landlaeknir.is/




Ritstjórn

Ingibjörg Guðmundsdóttir - ingibgud
Jurate Ásmundsson - juratea
Sigrún Kristjánsdóttir
Fjóla Haraldsdóttir
Dagmar Sigríður Lúðvíksdóttir - dagmarsl
Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Jón G Jónasson

Útgefandi

Helga Sigrún Gunnarsdóttir - helgashe

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 01/25/2023 hefur verið lesið 292 sinnum