../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-188
Útg.dags.: 06/16/2023
Útgáfa: 10.0
2.02.01.01 T4 frítt
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Týroxín (T4) er skjaldkirtilshormón sem gegnir mikilvægu hlutverki við stjórnun efnaskipta líkamans. Myndun og seyting T4 úr skjaldkirtlinum er undir stjórn TSH. Í blóði er lang stærstur hluti T4 (> 99,9%) bundinn plasmapróteinum (TBG, albúmín og transtýretíni). Aðeins lítill hluti (< 0,02%) er ópróteinbundinn, þ.e. frítt T4 (FT4) en sá hluti fer inn í frumur og er líffræðilega virkur. Magn bindipróteina hefur mikil áhrif á heildamagn T4 en ekki FT4. Mæling á magni FT4 gefur því betra mat á skjaldkirtilsstarfsemi heldur en T4.
Helstu ábendingar: Til að staðfesta grun um skjaldvakaofseytingu (hyperthyroidism) eða skjaldvakabrest (hypothyroidism). Til að fylgja eftir meðferð við skjaldkirtilssjúkdómum.
Hide details for MæliaðferðMæliaðferð
Electrochemiluminiscence immunoassay "ECLIA" á mælitæki frá Roche (cobas e immunoassay analyzers).
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Plasma 0,5 ml. Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.

Geymist 7 daga í kæli og 1 mánuð í frysti.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk

Aldurpmól/L
> 20 ára12-22
>11 ára ≤ 20 ára12,6-21
>6 ára ≤ 11 ára12,5-21,5
>1 árs ≤ 6 ára12,3-22,8
>3 mán. ≤ 12 mán.11,9-25,6
>6 daga ≤ 3 mán.11,5-28,3
0-6 daga11-32
Þungaðar konurpmól/L
Trimester 112,1-19,6
Trimester 29,6-17,0
Trimester 38,4-15,6
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Truflandi efni: Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri hækkun, í frítt T4 aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).

    Túlkun FT4 skal alltaf túlka samhliða TSH niðurstöðu. Alvarleg veikindi utan skjaldkirtils geta haft áhrif á styrk skjaldkirtilshormóna og það þarf að hafa í huga við túlkun niðurstaðna.
    Hækkun: FT4 er hækkað við ofstarfsemi skjaldkirtils (TSH lágt).
    Lækkun: FT4 er lækkað (TSH hækkað ) við vanstarfsemi í sjálfum skjaldkirtli (primer hypothyroidism). Ef vanstarfsemin á sér rætur í heiladingli/undirstúku þá er FT4 lágt og TSH annað hvort lækkað eða eðlilegt.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill FT4 (Free thyroxine), 2022-10, V 4.0. Roche Diagnostics
    Reference Intervals for Children and Adults, Elecsys Thyroid Tests, Roche Diagnostics GmbH, 2008.
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2018.

      Ritstjórn

      Sigrún H Pétursdóttir
      Ingunn Þorsteinsdóttir
      Fjóla Margrét Óskarsdóttir
      Guðmundur Sigþórsson

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Útgefandi

      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/07/2011 hefur verið lesið 8412 sinnum