../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-038
Útg.dags.: 01/05/2024
Útgáfa: 10.0
2.02.01.01 B12 (Kóbalmín)
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: B12 vítamín (kóbalamín) gegnir hlutverki sem kóensím við tvö efnahvörf í mannslíkamanum, 1) umbreytingu á metýlmalónýl-CoA í succinýl-CoA, hvatað af metýlmalónýl-CoA syntasa og 2) umbreytingu á hómócysteini í metíónín, hvatað af metíónín syntasa. Við skort á vítamín B12 hækka því methylmalónat og hómócystein. Skortur á vítamíni B12 veldur truflun á DNA myndun. Skortur á vítamíni B12 veldur því að frumur skipta sér hægar og í vef þar sem frumur skipta sér hratt, verða frumur stórar og með óþroskaðan frumukjarna. Klínísk einkenni skorts á B12 vítamíni koma fram í blóði, meltingarvegi og taugakerfi. B12 vítamín fæst úr fæðu úr dýraríkinu og vöntun vegna ónógrar inntöku er sjaldgæf. Algengasta orsök B12 skorts er pernicious anemia, sjálfsofnæmissjúkdómur þar sem vöntun verður á intrinsic factor sem er nauðsynlegur fyrir frásog B12 vítamíns frá þörmum. Birgðir af B12 vítamíni sem duga til 3-6 ára eru geymdar í lifrinni og B12 skortur er því lengi að þróast.
Helstu ábendingar: Blóðleysi (megalóblastísk anemía). Einkenni frá taugakerfi sem samræmast B12 skorti. Aum og rauð tunga (glossitis) og önnur óljós einkenni frá munnholi.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerðSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er gerð
Gerð og magn sýnis: Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja) . Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymsla: Geymist í 2 daga í kæli og í 2 mánuði fryst. Verja þarf sýni fyrir ljósi.
Mæling er gerð allan sólarhringinn alla daga.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk
210-800 pmól/L.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Truflandi efni: Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri hækkun, B12 aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).

    Túlkun
    Hækkun: Eftir meðhöndlun með B12 vítamíni. Við ýmsa blóðsjúkdóma t. d. hvítblæði (CML) og polycythemia vera. Við skemmd í lifur getur vítamín B12 losnað úr birgðum í lifur.
    Lækkun: Pernicious anemia. Truflun á frásogi B12 frá meltingarvegi af öðrum orsökum, t.d. magabólgur, sjúkdómar í smágirni eða eftir skurðaðgerðir þar sem magi eða smágirni hafa verið fjarlægð að hluta. Hjá grænmetisætum sem sneiða alveg hjá matvælum úr dýraríkinu.
    Hide details for HeimildirHeimildir
    Upplýsingableðill Vitamin B12, 2017-04, V 2.0 Roche Diagnostics, 2017
    Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
    Laurell Klinisk Kemi i Praktisk Medicin, níunda útgáfa. Studentlitteratur. 2012
      Ritstjórn

      Aldís B Arnardóttir
      Anna Svanhildur Sigurðardóttir - annasv
      Ingunn Þorsteinsdóttir

      Samþykkjendur

      Ábyrgðarmaður

      Ísleifur Ólafsson

      Útgefandi

      Sigrún H Pétursdóttir

      Upp »


      Skjal fyrst lesið þann 03/03/2011 hefur verið lesið 9189 sinnum