../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-071
Útg.dags.: 02/14/2023
Útgáfa: 1.0
2.02.01.01 Prótein S
    Hide details for Rannsóknir -  AlmenntRannsóknir - Almennt
    Verð: Sjá Gjaldskrá
    Grunnatriði rannsóknar:
    Prótein S er náttúrulegt blóðþynningarefni sem er cofaktor við virkt prótein C (activated protein C, APC), sem brýtur niður storkuþætti Va og VIIIa og dregur þannig úr hraða storkumyndunar. Prótein S er því hluti prótein C storkuhömlunarkerfisins. Minnkuð virkni prótein S leiðir til ofvirkni storkukerfisins og segahneigðar. Prótein S skortur er ein orsök ættlægrar segahneigðar en lækkun verður á meðgöngu og fölsk lækkun hjá fólki með factor V Leiden.
    Hide details for Sýnataka, sending og geymslaSýnataka, sending og geymsla
    Gerð og magn sýnis:
    Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat. . Litakóði samkvæmt Greiner.
    Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
    Ath: Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki kreppa og rétta úr hnefa.

    Sýnaglas skilið niður í kældri skilvindu við 4°C. Plasmað tekið frá innan 30 mínútna. Mælingin er gerð á plasma.

    Mælingin skal gerð innan 8 klst frá blóðtöku. Mælt á rannsóknarkjarna Hringbraut.
    Plasma geymist fryst við - 70°C.

    Plasma geymist fryst. Sýni geymist ekki við 2-8°C.
    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
    Svar: U/dl
    Túlkun
    Hækkun:
    Lækkun: sést við ættlægan skort á prótein S. Áunnin lækkun sést við heparíngjöf, warfarín og dicumarol meðferð, K-vítamínskort, lifrarbilun, L-asparaginasa meðferð, östrógenmeðferð, þungun og nephrotic syndrom. Fölsk lækkun sést við aukið APC-viðnám, sem er oftast af völdum Factor V Leiden.

Ritstjórn

Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Sigrún H Pétursdóttir
Páll Torfi Önundarson

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Páll Torfi Önundarson

Útgefandi

Sigrún H Pétursdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 10/20/2011 hefur verið lesið 333 sinnum