../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-071
Útg.dags.: 02/14/2023
Útgáfa: 1.0
2.02.01.01 Prótein S
Rannsóknir - Almennt
Rannsóknir - Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Prótein S er náttúrulegt blóðþynningarefni sem er cofaktor við virkt prótein C (activated protein C, APC), sem brýtur niður storkuþætti Va og VIIIa og dregur þannig úr hraða storkumyndunar. Prótein S er því hluti prótein C storkuhömlunarkerfisins. Minnkuð virkni prótein S leiðir til ofvirkni storkukerfisins og segahneigðar. Prótein S skortur er ein orsök ættlægrar segahneigðar en lækkun verður á meðgöngu og fölsk lækkun hjá fólki með factor V Leiden.
Sýnataka, sending og geymsla
Sýnataka, sending og geymsla
Gerð og magn sýnis:
Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat.
. Litakóði samkvæmt Greiner.
Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
Ath:
Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki kreppa og rétta úr hnefa.
Sýnaglas skilið niður í kældri skilvindu við 4°C. Plasmað tekið frá innan 30 mínútna. Mælingin er gerð á plasma.
Mælingin skal gerð innan 8 klst frá blóðtöku. Mælt á rannsóknarkjarna Hringbraut.
Plasma geymist fryst við - 70°C.
Plasma geymist fryst. Sýni geymist ekki við 2-8°C.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
70-140 U/dl
Niðurstöður
Niðurstöður
Svar:
U/dl
Túlkun
Hækkun:
Lækkun:
sést við ættlægan skort á prótein S. Áunnin lækkun sést við heparíngjöf, warfarín og dicumarol meðferð, K-vítamínskort, lifrarbilun, L-asparaginasa meðferð, östrógenmeðferð, þungun og nephrotic syndrom.
Fölsk lækkun sést við aukið APC-viðnám, sem er oftast af völdum Factor V Leiden.
Heimildir
Heimildir
Ritstjórn
Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Páll Torfi Önundarson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Páll Torfi Önundarson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »