../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rsýk-345
Útg.dags.: 05/13/2024
Útgáfa: 8.0
2.02.20 Magaskol – mýkóbakteríur
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriðiRannsóknir - Heiti, ábendingar, grunnatriði
Heiti rannsóknar: Magaskol - berklaræktun
Pöntun: Beiðni um sýklarannsókn eða Cyberlab innan LSH. Verð: Sjá Gjaldskrá
    Hide details for ÁbendingÁbending
    (1) Grunur um lungnasýkingu af völdum mýkóbaktería, aðallega M. tuberculosis komplex. Magaskol er gert hjá sjúklingum sem ekki geta skilað hráka, ungum börnum og þegar meðvitund er skert.
    Hide details for Grunnatriði rannsóknarGrunnatriði rannsóknar
    Sýni er afmengað með NaOH-acetylcystein og skilið niður. Botnfallinu er sáð í BactAlert ræktunarflöskur og á Lövenstein-Jensen æti. Hvorutveggja er ræktað í 7 vikur. Ekki er mælt með því aðsmásjárskoða magaskol, þar sem það þykir gefa takmarkaða niðurstöðu, það er þó oftast gert á Sýkla- og veirufræðideild, þá með Auramin-rhodamin lit.

    Þegar sýrufastir stafir ræktast er PCR gert á gróðrinum til tegundagreiningar. Reynist vera um Mycobacterium tuberculosis complex að ræða er líka leitað að ónæmisgenum hjá bakteríunni. Sé grunur um ónæmi er stofninn sendur utan í næmispróf. Sé þörf á næmisprófi á atýpískum mýkóbakteríum þarf að biðja um það sérstaklega.
    Hide details for SýnatakaSýnataka
      Hide details for Sérstök tímasetning sýnatökuSérstök tímasetning sýnatöku
      Sýni skal taka snemma morguns á fastandi maga þrjá daga í röð.

      Athugið að senda sýnin strax að sýnatöku lokinni á rannsóknastofuna. Líði meira en 4 tímar þar til sýnið berst þarf að bæta 100 mg af þvottasóta, dínatríum karbonati í það, því sýran drepur mýkóbakteríur með timanum.
      Hide details for Gerð og magn sýnisGerð og magn sýnis
      5 – 10 ml sýni sett í dauðhreinsað glas.
      Ef vitað er að sýni verður ekki unnið innan 4 klst er nauðsynlegt að blanda því í 100 mg Na2CO3 til að hindra að magasýrur drepi mýkóbakteríurnar.
      Hide details for Lýsing sýnatökuLýsing sýnatöku
      Slanga er þrædd um munn eða nef niður í maga, og 50 ml af dauðhreinsuðu vatni eða 0.9% saltvatni (10 - 20 ml hjá börnum) er hellt í gegnum slönguna. Skolað er nokkrum sinnum, t.d. með stórri sprautu, og skolvökvi síðan dreginn upp.

      Örugg losun sýnatökuefna og áhalda

    Hide details for Sending og geymslaSending og geymsla
      Hide details for Geymsla ef bið verður á sendinguGeymsla ef bið verður á sendingu
      Ef flutningur tefst um meira en 1 klst skal geyma í kæli < 24 klst. Athugið að þá þarf að hafa verið sett 100 mg af þvottasóti, Na2CO3, í sýnið, því annars dræpi sýran mýkóbakteríur með tímanum.

    Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
      Hide details for SvarSvar
      Niðurstöður úr smásjárskoðun, sé hún gerð, liggja fyrir eftir 2 – 3 virka daga. Neikvæðri ræktun er svarað eftir sjö vikur, jákvæðri oftast mun fyrr.

      Þegar sýrufastir stafir sjást í sýni er læknir sjúklings látinn vita. Einnig ef M. tuberculosis komplex ræktast.
      Hide details for TúlkunTúlkun
      M. tuberculosis telst alltaf sjúkdómsvaldur.
      Greining annarra mýkóbaktería verður að túlka í samræmi við tegund og bakteríumagn, einkenni og undirliggjandi ástand sjúklings, gerð sýnis og líkur á umhverfismengun, til dæmis úr vatni.

      Neikvæð smásjárskoðun og ræktun útiloka ekki sýkingu af völdum mýkóbaktería.

    Hide details for HeimildirHeimildir
    1. Manual of Clinical Microbiology. ASM Press, Washington D.C.
    2. Amy L. Leber. Clinical Microbiology Procedures Handbook. ASM Press, Washington D.C.
    3. Hatherill MI et al. induced sputum or gastric lavage for community-based diagnosis of childhood pulmonary tuberculosis? Arch Dis Child. 2009 Mar;94(3):195-201.
    4. Zar HJ et al. Induced sputum versus gastric lavage for microbiological confirmation of pulmonary tuberculosis in infants and young children: a prospective study. Lancet. 2005 Jan 8-14;365(9454):130-4.
    5. Heym B et al. Sputum induction versus gastric washing for the diagnosis of pulmonary mycobacterial disease. Eur Respir J. 2010 Aug;36(2):448-50
    6. Rizvi N et al. Yield of gastric lavage and bronchial wash in pulmonary tuberculosis. Int J Tuberc Lung Dis. 2000 Feb;4(2):147-51.
    7. Brown M et al. Prospective study of sputum induction, gastric washing, and bronchoalveolar lavage for the diagnosis of pulmonary tuberculosis in patients who are unable to expectorate. Clin Infect Dis. 2007 Jun 1;44(11):1415-20.

    1.

    Ritstjórn

    Brynja Ármannsdóttir - brynjaa
    Una Þóra Ágústsdóttir - unat
    Guðrún Svanborg Hauksdóttir - gusvhauk
    Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj
    Sara Björk Southon - sarabso
    Gerður Halla Gísladóttir - gerdurgi

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Guðrún Svanborg Hauksdóttir - gusvhauk

    Útgefandi

    Katrín Rún Jóhannsdóttir - katrinrj

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 04/06/2011 hefur verið lesið 38205 sinnum