../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rmynd-081
Útg.dags.: 01/08/2015
Útgáfa: 3.0
2.02.02.01 Lyfjabrunnur skuggaefnisrannsókn
Hide details for Rannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingarRannsóknir - Heiti, ábendingar, frábendingar
Heiti rannsóknar: Lyfjabrunnur skuggaefnisrannsókn.
Samheiti: Rannsókn á lyfjabrunni í skyggningu.
Pöntun: Röntgensvör, sjá leiðbeiningar um pöntun myndgreiningarþjónustu.
Ábendingar: Flæðistregða í lyfjabrunni.
Frábendingar: Skuggaefnisofnæmi.
    Hátt kreatíningildi / skert nýrnastarfsemi: Skuggaefnismagn sem gefið er í æð er reiknað út frá serum kreatínin, því þarf nýleg blóðprufa að liggja fyrir, einnig er stuðst við aldur, hæð og þyngd. Upplýsingar um serum kreatínin má finna á innraneti LSH, sjá Heilsugátt. Sjúklingi með bráða nýrnabilun er ekki gefið skuggaefni. Þetta á ekki við um einstakling sem er reglulega í blóðskilun.

    Sykursýkislyf: Noti einstaklingur eitthvert af eftirtöldum sykursýkislyfjum: Glucophage, Glucovance eða Avandmet, sem öll innihalda Metformin, skal sleppa að taka sykursýkislyf daginn sem rannsókn er framkvæmd og byrja aftur 48 klst. eftir rannsóknina. Ef gefa þarf skuggaefni í bráðarannsókn skal hætta notkun á Metformin lyfja 48 klst. eftir rannsókn og endurtaka serum kreatínin mælingu.

    Ofnæmi: Við þekkt joðskuggaefnisofnæmi þarf lyfjaforgjöf. Sjá Ofnæmislyf - Joðskuggaefni.
    Einstaklingur utan spítala geta nálgast ofnæmislyf á myndgreiningardeild tveimur dögum fyrir rannsókn.

Hide details for Undirbúningur og framkvæmdUndirbúningur og framkvæmd

Undirbúningur: Sjúklingur þarf að vera með nál í lyfjabrunninum við komu á myndgreiningardeild. Athuga þarf Kreatiningildi og sykursýkislyf sjá; frábendingar

Aðferð: Við myndgreiningarannsókn af lyfjabrunni er notað röntgentæki sem gefur frá sér jónandi geislun. Skuggaefni er sprautað í nálina í lyfjabrunninum og myndir teknar í skyggningu. Framkvæmt af röntgenlækni með aðstoð geislafræðings.

Tímalengd: 20 mínútur

Eftirmeðferð: Engin.
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Röntgenlæknir skoðar og metur rannsóknina. Niðurstaða er send til þess læknis sem óskaði eftir rannsókn, þegar svar hefur verið staðfest. Oftast er það næsti virki dagur. Læknar innan LSH geta skoðað svör og myndir á innri vef.

Svör eru eingöngu lesin fyrir lækna. Starfsfólki öðrum en læknum og læknariturum er óheimilt að lesa svar í síma.

Ritstjórn

Alda Steingrímsdóttir
Soffía G Þorsteinsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Pétur Hannesson

Útgefandi

Alda Steingrímsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 10/26/2011 hefur verið lesið 3470 sinnum