../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Vinnulýsing
Skjalnúmer: LSH-3345
Útg.dags.: 09/07/2020
Útgáfa: 2.0
17.01 COVID-19 - komur á göngudeild kvenlækningadeildar
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa breyttu fyrirkomulagi á göngudeildarkomum kvenlækningadeildar vegna ákvörðunar landlæknis um takmörkun dag- og göngudeildarþjónustu á meðan á COVID-19 faraldri stendur.
    Hide details for Hver framkvæmir og hvenærHver framkvæmir og hvenær
    • Móttökuritari kvenlækningadeildar bókar sjúkling í göngudeildarkomu í síðasta lagi daginn fyrir bókaða móttöku.
    • Sérfræðilæknir kvenlækningadeildar hringir í bókaða sjúklinga og tekur ákvörðun um hvort göngudeildarkoma er nauðsynleg og hversu lengi sjúklingur getur beðið.
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Móttökuritari
    • Bókar sjúklinga sem eru á biðlista eftir tíma á göngudeild sérfræðilæknis.
    • Heldur utan um sjúklinga sem þurfa göngudeildartíma síðar skv. fyrirmælum læknis í gengum skilaboðakerfi í Heilsugátt.
    • Ef símtal er óafgreitt eftir daginn er það flutt yfir á næsta göngudeildardag sérfræðilæknis.

    Sérfræðilæknir
    • Hringir í bókaða sjúklinga.
    • Skráir símtal í sjúkraskrárkerfi.
    • Merkir símtal sem afgreitt í afgreiðslukerfi þegar því er lokið.
    • Sendir skilaboð á móttökuritara (Ágústu) í Heilsugátt ef bóka á komu síðar á göngudeild og hvenær það á að vera.
    • Bókar göngudeildartíma fyrir sjúklinga sem ekki geta beðið í samráði við móttökuritara.
    • Ef ekki næst í sjúkling í síma þá er símtal haft óafgreitt í sjúkraskrárkerfi og móttökuritari flytur það á næsta bókaða göngudeildardag.

    Skoðanir á göngudeild kvenlækningadeildar
    • Skoðun fer fram á 21B
    • Enginn aðstandandi er viðstaddur nema í undantekningartilfellum (ef þörf er á, má athuga að hafa aðstandanda með í síma).
      1. Sjúklingur sem ekki er í sóttkví er skoðaður á stofu 3.
      2. Sjúklingur í sóttkví er skoðaður á stofu 2 (sóttvarnarherbergi).
      3. Sjúklingur sem er COVID-19 smitaður á ekki að koma í skoðun á deild nema í algjörum undantekningartilvikum og þá í samráði við COVID-teymi.

Ritstjórn

Dögg Hauksdóttir - dogghauk
Kolbrún Gísladóttir
Margrét Sjöfn Torp
Kristín Jónsdóttir - kjonsd

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Kristín Jónsdóttir - kjonsd

Útgefandi

Kolbrún Gísladóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 03/31/2020 hefur verið lesið 155 sinnum