../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: LSH-3501
Útg.dags.: 08/21/2020
Útgáfa: 1.0
27.00.02.01.05 COVID-19 - vinnusóttkví B-2
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa skyldum stjórnanda og starfsmanns þegar starfsmaður er í sóttkví B-2 vegna COVID-19. Upplýsingar um sóttkví B-2 á ensku eru í skjalinu: COVID-19 - quarantine B-2
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Við sérstakar aðstæður, þar sem aðrar leiðir eru ekki færar, kann að koma til þess að þjálfaðir starfsmenn sem eru í sóttkví fái heimild til að sækja vinnu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík sóttkví kallast sóttkví B-2.
    Utan starfsstöðvar gilda allar almennar reglur um sóttkví þrátt fyrir að undanþága hafi verið veitt til að sækja vinnu.

    Skilyrði fyrir sóttkví B-2:
    1. Umsókn um undanþágu hefur verið send og hún samþykkt.
    2. Önnur úrræði s.s. mönnun með tilfærslu starfsmanna stofnunar eða bakvarðasveit hafi verið könnuð til hlítar og duga ekki til.
    3. Nauðsynleg þörf er fyrir vinnuframlag viðkomandi starfsmanns að mati yfirmanna til að tryggja öryggi skjólstæðinga.
    4. Starfsmaður þarf að hafa neikvæða niðurstöðu úr fyrsta landamærasýni og vera einkennalaus.

    Skýringarmynd


    Leiðbeiningar fyrir starfsmenn í sóttkví B-2
    1. Starfsmaður notar hlífðarbúnað í allri umgengni við sjúklinga:
      • Langerma hlífðarslopp
      • Hanska
      • Skurðstofugrímu
    2. Starfsmaður sinnir handhreinsun fyrir og eftir notkun hlífðarbúnaðar, skiptir um hanska eftir samskipti við hvern sjúkling og hlífðarslopp ef hann hefur mengast eða samskiptum við sjúklinga er lokið (t.d. eftir stofugang). Starfsmaður hreinsar hendur fyrir og eftir veru í sameiginlegum rýmum starfsmanna (salerni og kaffistofa).
    3. Í almennum rýmum:
      • Starfsmaður notar skurðstofugrímu öllum stundum
      • Starfsmaður heldur tveggja metra fjarlægð frá öðrum starfsmönnum öllum stundum
      • Heimilt er að taka grímu niður þegar matar og drykkjar er neytt en halda á tveggja metra fjarlægð.
      • Stjórnandi sér til þess að snertifletir í sameiginlegum rýmum þar sem starfsmaður hefur verið eru sprittaðir einu sinni á dag að lágmarki.
    4. Leitast er við að starfsmaður í sóttkví B-2 hafi sér salerni. Ef það er ekki hægt á starfsmaður að spritta alla snertifleti á salerni eftir hverja notkun.
    5. Starfsmaður í sóttkví B-2 sækir ekki önnur rými á Landspítala en nauðsynleg eru starfs hans vegna.
    6. Starfsmaður fylgist með einkennum daglega skv. leiðbeiningum um eftirlit með útsettum starfsmönnum fyrir COVID-19. Ef grunur vaknar um COVID-19 smit er fylgt verklagi "Starfsmaður fær einkenni sem geta bent til COVID-19".
    7. Starfsmaður mætir í sýnatöku skv. boðun frá heilsugæslu.
    8. Þegar niðurstaða úr seinna sýninu liggur fyrir á 6. degi lýkur heimasóttkví og sóttkví B-2 og starfsmaður vinnur skv. sóttkví C á Landspítala þar til 14 dagar eru liðnir frá heimkomu.

    Veggspjald um sóttkví B

Ritstjórn

Ásdís Elfarsdóttir
Anna María Þórðardóttir
Lovísa Björk Ólafsdóttir - lovisao
Hólmfríður Erlingsdóttir
Ólafur Guðlaugsson
Ingunn Steingrímsdóttir - ingunnst

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Ingunn Steingrímsdóttir - ingunnst

Útgefandi

Ingunn Steingrímsdóttir - ingunnst

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 08/21/2020 hefur verið lesið 674 sinnum