../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Vinnulýsing
Skjalnúmer: LSH-051
Útg.dags.: 11/28/2019
Útgáfa: 5.0
1.06.2 Skráning og vöktun ofnæmis og aðvarana í Snjókorni Sögu
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa verklagi við skráningu og skoðun ofnæmis og aðvarana í Snjókorni Sögu.
    Hide details for Hver framkvæmir og hvenærHver framkvæmir og hvenær
    Heilbrigðisstarfsmenn/ritarar sem skráir ofnæmi og aðvaranir í Snjókorni:
    1. Við stofnun nýrrar lotu innan einnar klukkustundar frá komu
    2. Ekki sjaldnar en á sex mánaða fresti við endurteknar komur innan lotu
    3. Jafnóðum og breytingar verða á skráningaratriðum

    Heilbrigðisstarfsmenn vakta ofnæmi og aðvaranir í Snjókorni
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Skráningu í Snjókorn má gera í öllum einingum Sögu með eftirfarandi leiðum:
    • Í Persónuupplýsingum
    • Í fellivallista "Saga - aðvaranir"
    • Með flýtileið "Ctrl + Shift + A"
    • Með því að tvísmella á Snjókornið
      Hide details for Ofnæmisarmur Snjókorns SöguOfnæmisarmur Snjókorns Sögu

      Ofnæmisskráning er rafræn og birtist í miðjuarmi Snjókorns á eftirfarandi hátt:
      • Bráðaofnæmi _______Birtist sem rauður ferhyrningur efst í miðhluta Snjókorns
      • Ofnæmi ___________ Birtist sem rauð strik í miðhluta Snjókorns
      • Grunur um ofnæmi __ Birtist sem bleikur hringur neðst í miðhluta Snjókorns
      • Óþol ______________Birtist sem bleikur hringur neðst í miðhluta Snjókorns

      Staðfest með rannsókn: Ofnæmislæknar (ekki aðrir) bera ábyrgð á og skrá að ofnæmi hafi verið „Staðfest með rannsókn“ í fellilistanum „Upplýsingar fengnar“ en ekki aðrir.

      Vöktun ofnæmis felst í að skoða skráningu í Snjókorni Sögu.

      Skráning fer fram í rauntíma eða innan skilgreindra tímamarka skv. stefnu Landspítala í skráningu hjúkrunar á þeirri deild sem sjúklingur kemur á eða dvelur hverju sinni. Upplýsingar um ofnæmi eru uppfærðar við stofnun nýrrar lotu innan einnar klst. frá komu. Jafnframt eru þær uppfærðar ekki sjaldnar en á sex mánaða fresti við endurteknar komur innan lotu.

      Áður en ofnæmisskráning er staðfest er ofnæmi yfirfarið með sjúklingi eða aðstandanda ef sjúklingur er ófær um að veita upplýsingar sjálfur.

      Upplýsingar um ofnæmi eru alltaf staðfestar og vistaðar í Snjókorni Sögu hvort sem sjúklingur er með ofnæmi eða ekki.

      Ofnæmi er metið og/eða ofnæmisskráning yfirfarin í upphafi hverrar meðferðarlotu þó það hafi áður verið skráð eða staðfest í öðrum lotum.


      Ef sjúklingur flyst á milli deilda er ofnæmi ávallt metið, skráð og staðfest í Snjókorni.

      Þegar heilbrigðisstarfsmaður sér ástæðu til að spyrja sjúkling um ofnæmi er það staðfest í Snjókorni, hvort sem sjúklingur er með ofnæmi eða ekki. Sama á við þó ofnæmi hafi verið skráð eða staðfest af öðrum.

      Nánari leiðbeiningar um framkvæmd skráningar eru á vefsíðu Origo og á YouTube rás.
      Hide details for Smitgátararmur Snjókorns SöguSmitgátararmur Snjókorns Sögu
      Skráning á smitgát er rafræn og birtist sem karrýgulur ferhyrningur í suðvesturarmi Snjókorns.
      Smitgátararmurinn upplýsir um aðvaranir sem þegar eru þekktar og tilgreinir hvort sjúklingur er í áhættuhópi fyrir að vera með ónæmar bakteríur.

      Við komu sjúklings er skráð í smitgátararminn í samræmi við gildandi verklagsreglu.



      Starfsfólk sýkingavarnadeildar skráir allar aðrar smitgátaraðvaranir.

      Starfsfólk klínískra deilda vaktar og bregst við skráningum samkvæmt verklagsreglu sýkingavarnadeildar.
      Hægt er að senda fyrirspurn á sýkingavarnadeild um endurskoðun og uppfærslu á skráningu smitgátar með tölvupósti á netfangið sykingavarnadeild@landspitali.is.

      Nánari leiðbeiningar um framkvæmd skráningar eru á vefsíðu Origo og á YouTube rás.
      Hide details for Meðferðarstigsarmur Snjókorns Sögu Meðferðarstigsarmur Snjókorns Sögu
      Skráning á meðferðarstigi er rafræn og birtist sem blár ferhyrningur í suðausturarmi Snjókorns.
      Læknar skrá meðferðarstig sjúklings samkvæmt klínískum leiðbeiningum um líknarmeðferð. Valið er á milli meðferðarstiga:
      1. Full meðferð (FM)
      2. Fullri meðferð að endurlífgun með eða án annarra takmarkana (FME). Hægt er að velja eftirfarandi takmarkanir:
        • Ekki gjörgæsluvistun
        • Ekki öndunarvél
        • Ekki bipap/cpap
        • Ekki blóðskilun
        • Annað
      3. Lífslokameðferð (LLM)
        • Viðeigandi getur verið að skrá sjúkling á lífslokameðferð án þess að hann sé deyjandi næstu daga eða klukkustundir
        • Ef unnið er eftir meðferðaráætlun fyrir deyjandi er skráð hvenær hún var tekin í notkun með því að velja dagssetningu

      Meðferðaraðilar klínískra deilda vakta og bregðast við skráningum um meðferðarstig.

      Nánari leiðbeiningar um framkvæmd skráningar eru á vefsíðu Origo og á YouTube rás.
      Hide details for Armur annarra aðvarana í Snjókorni Sögu Armur annarra aðvarana í Snjókorni Sögu
      Skráning annarra aðvarana er rafræn og birtist sem rauður ferhyrningur í norðvesturarmi Snjókorns.

      Meðferðaraðilar klínískra deilda vakta, bregðast við og endurskoða þessar aðvaranir.
      Dæmi um mikilvægar aðvaranir eru:
      · Sjúklingur vill ekki blóðhlutagjöf
      · Sjúklingur er heyrnarlaus
      · Sjúklingur skilur ekki íslensku

      Nánari leiðbeiningar um framkvæmd skráningar eru á vefsíðu Origo og á YouTube rás.
      Hide details for Greiningararmur Snjókorns Sögu (lífsógnandi greiningar) Greiningararmur Snjókorns Sögu (lífsógnandi greiningar)
      Skráning lífsógnandi greininga er rafræn og birtist sem rauður ferhyrningur í norðausturarmi Snjókorns.
      Lífsógnandi sjúkdómar sem geta valdið sjúklingi verulegri hættu, þ.e. sjúkdómar eða meðferð vegna þeirra, eru skráðir skv. ICD-10 kóðakerfinu.

      Læknar skrá lífsógnandi greiningar í sjúkraskrá sjúklings. Ákveðnar fyrirfram skilgreindar lífsógnandi greiningar sem skráðar eru í sjúkraskrá sjúklings varpast sjálfkrafa yfir í Snjókornið. Einnig er hægt að skrá lífsógnandi greiningar handvirkt í Snjókornið.

      Meðferðaraðilar klínískra deilda vakta og bregðast við skráningum á lífsógnandi greiningum.

      Dæmi um lífsógnandi sjúkdóma eru:
      · Sjúkdómar sem valda alvarlegum viðbrögðum við efnum eða lyfjum.
      · Sjúkdómar sem eru alvarlegir en mjög sjaldgæfir.
      · Sjúkdómar sem geta valdið skyndilegri versnun líkamsástands.
      · Sjúkdómar þar sem meðferð getur valdið hættu vegna aukaverkana.

      Nánari leiðbeiningar um framkvæmd skráningar eru á vefsíðu Origo og á YouTube rás.


    Ritstjórn

    Anna María Þórðardóttir
    Hanna K Guðjónsdóttir
    Hulda Guðmundsdóttir

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Elísabet Benedikz

    Útgefandi

    Anna María Þórðardóttir

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 10/12/2015 hefur verið lesið 1606 sinnum