../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Vinnulýsing
Skjalnúmer: LSH-2416
Útg.dags.: 11/10/2022
Útgáfa: 2.0
22.01.03 Lífsmörk fullorðinna - réttstöðublóðþrýstingur
Tilgangur
Tilgangur
Að lýsa
verklagi við framkvæmd réttstöðublóðþrýstingsmælingar hjá fullorðnum (18 ára og eldri)
og mati á niðurstöðum mælingar.
Hver framkvæmir og hvenær
Hver framkvæmir og hvenær
Hjúkrunarfræðingur, læknir, sjúkraliði eða starfsmaður, se
m
hefur
þjálfun í að mæla réttstöðublóðþrýsting.
Framkvæmd
Framkvæmd
Algengt er að mæla réttstöðublóðþrýsting þegar sjúklingur hefur fengið byltu eða er óstöðugur á fótum. Tryggja þarf öryggi sjúklings við mælinguna, t.d. með því að tveir aðilar eru við framkvæmd mælingar
ef sjúklingur er óstöðugur á fót
um. Ef sjúklingi fer að líða illa og er í hættu á að detta er hætt við mælingu
og hann aðstoðaður við að leggjast.
Mæling á réttstöðublóðþrýstingi fer fram á þrem
ur
tí
mapunktum:
Liggjandi í hvíld (mæling 1)
Standandi innan einnar mínútu (mæling 2)
Standandi eftir þrjár mínútur (mæling 3)
Nauðsynlegt er að mæla tímann á milli mælinga.
Framkvæmd
Framkvæmd mælingar er útskýrð fyrir sjúklingi.
Þegar sjúklingur hefur legið láréttur í a.m.k. fimm mínútur er blóðþrýstingur mældur (mæling 1).
Sjúklingur
stendur upp,
með aðstoð ef þörf er á
.
Þegar sjúklingur er staðinn upp er hann mældur (mæling 2).
Þegar sjúklingur hefur staðið uppréttur í þrjár mínútur er blóðþrýstingur mældur í þriðja sinn (mæling 3).
Ef blóðþrýsting
ur er lægri í mælingu þrjú en mælingu tvö er hann mældur aftur þegar sjúklingur hefur staðið í fjórar mínútur. Endurtekið þar til blóðþrýstingur er hættur að lækka.
Sjúklingur er upplýstur um niðurstöður mælinga.
Skráning
Niðurs
töður eru skráðar í sjúkraskrá. Skráð er við hverja mælingu:
Líkamsst
aða
sjúklings
Tíma
setningar mælinga
Einkenni sem sjúklingur fær
þ
egar mælingin var framkvæmd eru skráð í framvinduskráningu eða dagál/bráðamóttökuskrá. Einkenni geta verið:
Svimi
Höfuðverkur
Fölvi
Sjóntruflanir
Slappleiki
Hjartsláttarónot
Ef mælingarnar eru sendar í sjúkraskrá með
þráðlausri sendingu
þarf heilbrigðisstarfsmaður að fara í sjúkraskrá og skrá líkamsstöðu sjúklings við hverja mælingu fyrir sig.
Túlkun niðurstaðna
Jákvæð niðurstaða telst:
Efri mörk blóðþrýstings (systóla) lækka um 20 mmHg eða meira (með eða án einkenna)
Efri mörk blóðþrýstings (systóla) fara niður fyrir 90
mmHg standandi jafnvel þó að lækkunin sé minni en 20 mmHg
Neðri mörk blóðþrýstings
(díastóla) l
ækka um 10 mmHg og sjúklingur fær einkenni.
Þó er það klínískt minna mikilvægt en lækkun á efri mörkum.
Viðbrögð
Meðferðaraðili er upplýstur
um niðurstöður mælinga.
Ef niðurstöður eru jákvæðar,
eru mælingar endurteknar
reg
lulega skv. fyrirmælum.
Brugðist er við byltuhættu skv.
verklagi
.
Sjúklingi er leiðbeint um að sýna aðgát við að standa á fætur, sitja í nokkrar mínútur áður en staðið er á fætur eða biðja um aðstoð við fótaferð.
Heimildir
Heimildir
Measurement of lying and standing blood pressure: A brief guide for clinical staff
Fara aftur í verklagsreglu:
Lífsmörk fullorðinna - eftirlit
Ritstjórn
Anna María Þórðardóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Elísabet Benedikz
Útgefandi
Anna María Þórðardóttir
Upp »