../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Vinnulýsing
Skjalnúmer: LSH-075
Útg.dags.: 08/17/2020
Útgáfa: 3.0
1.06.04 Skráning lífsmarka og mælinga í sjúkraskrá Sögu
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa verklagi við skráningu lífsmarka og mælinga í Sögu.
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
    Öll lífsmörk og mælingar eru skráðar í eininguna "Lífsmörk og mælingar" í Sögu. Annað verklag gildir um skráningu á vökvajafnvægi. Sum lífsmarkatæki senda mælingar þráðlaust í sjúkraskrá og er skráning þá óþörf.

    Einingin er opnuð með því að:
    • Ýta á "Lífsmörk og mælingar" vinstra megin á stikunni í Sögu
    • Með flýtileið <AltGr> z

    Skráning lífsmarka og/eða mælinga
    1. Hægt er að hefja skráningu lífsmarka og/eða mælinga með mismunandi hætti:
      • Ýta á hnappinn "Skrá"
      • Hægri smella og velja "skrá"
      • Með flýtileið "Ctrl + n"
    2. Valin er rétt dag- og tímasetning
    3. Valin er mæling sem á að skrá. Hægt er að hoppa á milli reita með því að nota "tab" hnapp á lyklaborði og örvar upp og niður í fellilistum
    4. Hægt er að skrá mismunandi mælingar sjúklings án þess að vista á milli
    5. Ýtt er á vista eða "enter" þegar skráningu lífsmarka og mælinga er lokið fyrir valinn sjúkling
    6. Hægt er að velja næsta sjúkling með því að ýta á "Næsti sjúklingur" eða hætta í skráningu með því að ýta á "Loka"

    Breyta skráðu gildi
    1. Skráð mæling sem á að breyta er valin
    2. Hægt er að breyta skráningu með því að:
      • Ýta á hnappinn "Breyta"
      • Hægri smella á mælinguna og velja "Breyta"
    3. Skráningu breytt og ýtt á "Breyta"
    4. Gefa þarf skýringu á breytingu
      • Með því að velja úr fellilista
      • Með því að skrifa frjálsan texta
    5. Ýtt á "Staðfesta"
    Ógilda skráningu
    1. Skráð mæling sem á að ógilda er valin
    2. Hægt er að ógilda skráningu með því að:
      • Ýta á hnappinn "Ógilda"
      • Hægri smella á mælinguna og velja "Ógilda"
    3. Gefa þarf skýringu á ógildingu
      • Með því að velja úr fellilista
      • Með því að skrifa frjálsan texta
    4. Ýtt á "Staðfesta"

    Þegar farið er inn í eininguna birtast lífsmörk valins sjúklings yfir ákveðið tímabil. Nánari leiðbeiningar um stillingar á einingunni og notkun hennar má finna á vefsíðu Origo og YouTube rás. Þar eru nánari skýringar á lífsmörkum og mælingum sem hægt er að skrá.


Fara aftur í verklagsreglu: Lífsmörk fullorðinna - eftirlit

Ritstjórn

Anna María Þórðardóttir
Hanna K Guðjónsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Elísabet Benedikz

Útgefandi

Anna María Þórðardóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 12/21/2015 hefur verið lesið 1044 sinnum