../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: LSH-3925
Útg.dags.: 06/21/2023
Útgáfa: 4.0
25.00.03.02.03 COVID-19 - Casirivimab/imdevimab - blöndun, inngjöf og geymsla
    Hide details for TilgangurTilgangur
    Að lýsa blöndu, inngjöf og geymslu á casirivimab/imdevimab. Casirivimab/imdevimab er
    einstofnamótefni við COVID-19.
    Hide details for Efni og áhöldEfni og áhöld
      • 5 ml luer-lock sprautur til að draga lyf úr hettuglösum
      • Uppdráttarnál (21 gauge)
      • NaCl 0,9% 250 ml innrennslispoki fyrir lyfjaíblöndun
      • Innrennslissett: Volumat Line (VL ON70, oncology 0,2 µm filter, PVC free)
      • Lyfjadæla fyrir innrennslispoka
      • Bráðameðferðarlyf eiga að vera til staðar.
    Hide details for FramkvæmdFramkvæmd
      • Casirivimab/imdevimab kemur í tveimur hettuglösum 120 mg/ml casirivimab annars vegar og 120 mg/ml imdevimab hins vegar.
      • Lyfið geymist í kæli (2-8°C).
      • Geymsluþol eftir íblöndun: Ráðlagt er að gefa lyfið strax eftir blöndun.
      • Lyfið er án rotvarnarefna og því á að gefa lyfið strax. Ef ekki er hægt að gefa lyfið strax
        má geyma tilbúnar sprautur með lyfjunum í kæli (2-8°C) í allt að 24 klst. Lyfið þarf síðan að ná stofuhita í 10-15 mín áður en haldið er áfram.

    Undirbúningur fyrir blöndun
      1. Hettuglösin eru tekin úr kæli (2-8°C). Lyfið er látið ná stofuhita í um það bil 20 mínútur.
      2. Hettuglasið er skoðað og tryggt að lyfið sé án agna og glasið hafi ekki orðið fyrir skemmdum. Ef hettuglasið er talið ónothæft er því fargað og hafinn undirbúningur á ný með nýju hettuglasi.
      3. Hettuglasinu er snúið gætilega í hringi nokkrum sinnum fyrir notkun án þess að loftbólur myndist. Hvorki má hrista hettuglasið né sveifla því kröftuglega.
    Blöndun lausnar til innrennslis
      Fyrir heildarskammt 1200 mg (600 mg casirivimab og 600 mg imdevimab)
      1. Hendur eru hreinsaðar og klæðst er hönskum. Notuð eru aseptísk vinnubrögð.
      2. Tappi er losaður af hettu og gúmmí sprittað með klórhexidínspritti og látið þorna.
      3. Dælt er 5 ml af casirivimab og 5 ml af imdevimab í 250 ml NaCl 0,9 % innrennslispoka.
      4. Því sem eftir er í hettuglösunum er fargað.
      5. Innrennslispokanum er velt gætilega fram og tilbaka 10 sinnum fyrir innrennslið.
      6. Lyfjapokinn með íblöndunarlyfinu er merktur með miða þar sem fram kemur:
        • Magn lyfs
        • Heiti lyfs
        • Upphafsstafir þess sem blandar lyfið, dagsetning og tími
    Lyfjagjöf
      1. Innrennslissett er fyllt (Volumat Line (VL ON70, oncology 0,2 µm filter, PVC free).
      2. Lyfið er gefið í dreypi í bláæð með lyfjadælu á 30 mínútum.
      3. Þess er gætt að gefa allt lyfið úr pokanum. Því er mikilvægt að skola innrennslissettið í lok gjafar, á sama hraða og lyf var gefið. Skolað er með NaCl 0,9%.
      4. Fylgst er með innrennslistengdum aukaverkunum á meðan á innrennsli stendur og einni klukkustund eftir að því lýkur. Lyfjagjöf er strax stöðvuð ef alvarleg einkenni koma fram.


      Fara aftur í verklagsreglu:
      Leitarorð: Ronapreve, casirivimab, imdevimab, REGN-COV

    Ritstjórn

    Kristjana Kristinsdóttir - Kristjana
    Elín I Jacobsen
    Þórunn K Guðmundsdóttir
    Þórunn Óskarsdóttir - thorunos

    Samþykkjendur

    Ábyrgðarmaður

    Tinna Rán Ægisdóttir - tinnara

    Útgefandi

    Kristjana Kristinsdóttir - Kristjana

    Upp »


    Skjal fyrst lesið þann 03/10/2022 hefur verið lesið 290 sinnum